Betri stofan
Betri stofan er tilvalinn kostur fyrir þá gesti sem kjósa meira næði.
Starfsmaður Betri stofu tekur á móti gestum við komu og fylgir í einkabúningsklefa með handklæðum, slopp, inniskóm og Blue Lagoon húðvörum. Á svæðinu eru alls sex einkabúningsklefar sem rúma einn eða tvo gesti hver.
Úr búningsklefum hafa gestir aðgang að huggulegri setustofu með arni og fallegum húsgögnum þar sem gott er að setjast niður og slaka á. Léttar veitingar, kaffi og te eru í boði í setustofu en einnig er tilvalið að panta sér veitingar og drykki af matseðli LAVA og njóta í setustofunni. Starfsmaður Betri stofu er tilbúinn til aðstoðar hvenær sem er og hægt er að ná í hann beint gegnum síma í setustofunni.
Úr setustofu er aðgangur í sérstakt innilón og þaðan opnast hurð út í Bláa Lónið sjálft. Á efri hæð svæðisins eru svalir með stólum og borðum og útsýni yfir lónið og náttúruna í kring.
Hægt er að taka Betri stofu frá fyrir einstaklinga og/eða hóp. Hámarksfjöldi í Betri stofu eru 12 gestir.
Við mælum með að gestir bóki Betri stofu með fyrirvara.
Verð
| Verð | |
| Aðgangur fyrir einn ( 3 klst.) | 16.000 kr. |
| Viðbótar klukkustund fyrir einn | 5.600 kr. |
| Aðgangur fyrir tvo (3 klst.) | 21.600 kr. |
| Viðbótar klukkustund fyrir tvo | 7.200 kr. |
Bókanir og fyrirspurnir:
- hringið í síma +354 420 8800
- sendið okkur póst á sales@bluelagoon.is
Við svörum öllum fyrirspurnum við fyrsta mögulega tækifæri.
.
"Betri stofan kom mér þægilega á óvart sem og öll önnur fagmannleg þjónusta Bláa Lónsins. Ég fékk fullkomið næði til að endurnæra líkama og sál og slakaði vel á í frábærlega útbúinni setustofunni. Fullt hús stiga! "
- Gestur Steinþórsson
Gisting í Bláa Lóninu
Út að borða