Algengar spurningar
Hvað er Bláa Lónið?
Hversu stórt er Bláa Lónið?
Hvert er hitastig lónsins og hversu ört endurnýjast vatnið í lóninu?
Getur fólk komið í Bláa Lónið án þess að borga aðgangseyri?
Er hægt að nota bláu armböndin til að kaupa veitingar?
Takið þið erlenda mynt?
Eru öryggisverðir í Bláa Lóninu?
Er óhætt fyrir vanfærar konur að fara í lónið?
Er einhver leið að komast nær Bláa Lóninu með fatlað eða aldrað fólk?
Er hægt að fá lánaðan hjólastól?
Geta fatlaðir einstaklingar farið ofan í lónið?
Má nota Blue Lagoon húðvörur fyrir ungabörn?
Hvenær var formleg opnun Bláa Lónsins?
Hver er arkitekt Bláa Lónsins?
Hversu margar hraunhellur inniheldur hraunveggurinn í Bláa Lóninu?
Hvernig er bað og búningsaðstaðan?
Hvað er Bláa Lónið?
Bláa Lónið er einstakur jarðsjór sem er að tveimur þriðju hlutum saltvatn og einum þriðja hluta ferskvatn. Jarðsjórinn finnst á allt að 2000 metra dýpi og er leiddur með lögn frá uppsprettunni að heilsulindinni þar sem gestir njóta þess að slaka á í hlýjum jarðsjónum. Jarðsjórinn rennur einnig afsjálfsdáðum um hraunið sem umlykur svæðið og blandast því auðveldlega jarðsjónum sem leiddur er í lögn að heilsulindinni. Jarðsjórinn er ríkur af steinefnum, kísil og þörungum.
Hversu stórt er Bláa Lónið?
Baðstaðurinn er 6.000 m2 og lónið er 5.000 m2.
Hvert er hitastig lónsins og hversu ört endurnýjast vatnið í lóninu?
Með því að leiða hluta jarðsjávarins í lögn að Bláa Lóninu er hægt að stjórna hitastigi lónsins og halda því í 37-39°C. Sírennsli er í gegnum lónið og endurnýjast allt vatnið á 40 klukkustundum. Sýni eru tekin reglulega og eru þau ávallt undir viðmiðunarmörkum. Sýni eru tekin í samræmi við reglur Bláfánans og þarf að uppfylla strangar kröfur hvað varðar vatnsgæði, öryggismál og verndun umhverfisins. Bláa Lónið var fyrsti staðurinn á Íslandi til þess að fá afhentan Bláfánann.
Getur fólk komið í Bláa Lónið án þess að borga aðgangseyri?
Já, í Bláa Lóninu má finna verslun, veitingastað og bistró með léttum veitingum. Tilvalið er að setjast niður og njóta útsýnisins í gegnum háa glerveggi og einnig er mögulegt að ganga upp á útsýnispallinn (á þaki LAVA veitingarstaðar) sem veitir stórbrotið útsýni yfir heilsulindina og náttúrulegt umhverfi þess.
Er hægt að nota bláu armböndin til að kaupa veitingar?
Gestir fá afhend blá armbönd við komu í heilsulind. Auk þess að vera lyklar fyrir skápa í klefum geta gestir notað armböndin sem kreditkort og verslað á innilaugarsvæði. 5.000 króna úttektarheimild fylgir hverju armbandi fyrir fullorðna en upphæðin er greidd við útgönguhlið. Gestir bera ábyrgð á armböndum sínum og glatist armband greiðir viðkomandi gestur sekt að upphæð 3.000 krónur.
Takið þið erlenda mynt?
Já, tekið er við eftirfarandi myntum: USD, GBP, CAD, DKK, NOK, SEK, CHF, JPY, EUR.
Eru öryggisverðir í Bláa lóninu?
Öryggisgæsla í Bláa Lóninu er öflug. Allir starfsmenn baðsvæðis uppfylla kröfur sem gerðar eru til baðvarða og eru æfingar tíðar. Það eru alltaf a.m.k. tveir öryggisverðir á vakt en fleiri þegar gestafjöldi eykst. Einn er uppi í turni þar sem öll öryggistæki eru til staðar en annar öryggisvörður er á gangi á baðsvæðinu.
Er óhætt fyrir vanfærar konur að fara í lónið?
Hver og einn einstaklingur er á sinni eigin ábyrgð ofan í lóninu. Hitastig lónsins er á bilinu 37-39°C og er vanfærum konum því ráðlagt að meta líkamlegt ástand sitt áður þær fara ofan í lónið þar sem líkaminn bregst misvel við heitu vatni. Vanfærum konum er bent á að drekka nóg af vatni og að vera vel mettar á meðan dvalið er í lóninu. Bláa Lónið býður upp á meðgöngunudd sem fer fram á dýnu ofan í lóninu.
Er óhætt að fara með börn í lónið?
Enginn aðgangseyrir er fyrir börn 13 ára og yngri í Bláa lónið í fylgd með forráðamönnum. Dýpið á lóninu er 90-140 cm og því er full ástæða til að hvetja foreldra og forráðafólk að gæta fyllstu varúðar með börn sín. Hægt er að fá lánaða armkúta og er eindregið mælt með því að öll börn undir 10 ára aldri og ósynd börn noti armkúta. Í búnings- og sturtuherbergjum má finna skiptiborð, bala og barnastóla fyrir ungabörn.
Er einhver leið að komast nær Bláa Lóninu með fatlað eða aldrað fólk?
Hægt er að komast á bíl alveg upp að byggingu Bláa lónsins en þá er farið áfram hægra megin við almennan inngang. Inngangurinn er lengst til hægri þegar komið er inn á bílastæðið merktur LAVA.
Er hægt að fá lánaðan hjólastól?
Já, það er hægt að fá lánaðan hjólastól, bæði er til staðar hefðbundinn stóll og svo sturtustóll. Vinsamlegast ráðfærið ykkur við starfsfólk í gestamóttöku við komu.
Geta fatlaðir einstaklingar farið ofan í lónið?
Já, fatlaðir geta farið ofan í lónið. Sérstakt salerni með sturtu er til staðar fyrir fatlaða einstaklinga. Fylgdarmaður fatlaðs einstaklings fær frían aðgang í Bláa Lónið. Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk í gestamóttöku.
Má nota Blue Lagoon húðvörur fyrir ungabörn?
Mælt er með að nota húðvörur sem sérstaklega eru þróaðar fyrir ungabörn. Hins vegar ætti að vera óhætt að nota eftirfarandi Blue Lagoon húðvörur fyrir ungabörn þar sem þær eru allar ofnæmisprófaðar, ilmefna- og litarefnalausar s.s. mineral bath salts, mineral moisturizing cream, mineral intensive cream, silica softening bath and body oil.
Hvenær var formleg opnun Bláa Lónsins?
Bláa Lónið var formlega opnað 15. júlí 1999 af forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni.
Hver er arkitekt Bláa Lónsins?
Sigríður Sigþórsdóttir, VA Arkitektar, er aðalhönnuður baðstaðarins.
Hversu margar hraunhellur inniheldur hraunveggurinn í Bláa lóninu?
Stóri hraunveggurinn er einkennandi fyrir Bláa lónið en hann inniheldur 130.000 hraunhellur.
Hvernig er bað- og búningsaðstaðan?
Búningsaðstaðan rúmar 700 gesti samtímis. Búningsklefarnir eru sex talsins, þrír kvennaklefar og þrír karlaklefar.
Á efri hæð baðstaðarins eru tveir kvennaklefar og tveir herraklefar. Speglar og hárblásarar eru til staðar í klefunum. Sérstakir skiptiklefar þar sem gestir geta skipt um föt í einrúmi eru einnig í klefum á efri hæð.