Náttúruuppsprettan
Blue Lagoon jarðsjórinn er hluti vistkerfis sem varð til með samspili náttúru og vísinda. Jarðsjórinn á uppruna sinn á 2000 metra dýpi þar sem það er hitað upp af náttúruöflunum. Á þessu dýpi er hitastigið 240°c og þrýstingurinn 36 sinnum meiri en á yfirborði jarðar. Jarðsjórinn kemst í snertingu við kælandi kvikuna og safnar í sig steinefnum jarðar. Þannig myndast þessi einstaka náttúruuppspretta sem er þekkt fyrir lækningamátt sinn og virk efni.
Samsetning steinefna í jarðsjónum er einstök og með mjög háu kísilinnihaldi. Umhverfið einkennist af háhita og 2,5% salthlutfalli sem er þriðjungur saltmagns sjávar.
Rannsóknir og þróun
Jarðsjórinn er leiddur í Bláa lónið svo að fólk geti notið þess að baða sig í honum og í Þróunarsetur þar sem virku efnin eru einangruð til notkunar í Blue Lagoon húðvörum. Rannsóknir og þróun hafa frá upphafi verið burðarstólpar starfssemi Bláa Lónsins. Rannsóknar- og þróunarteymið vinnur með mörgum af virtustu vísindamönnum heims og myndar þannig öflugt tengslanet og þekkingu í líftæknifræði, húðlækningum og snyrtifræði sem byggir á virkum efnum sjávar.