Einstök upplifun

Bláa lónið

Umhverfi og arkitektúr

Bláa lónið er staðsett milli tveggja heimsálfa, á skilum Evrasíu- og Ameríkuflekanna. Hraunið umhverfis Bláa lónið heitir Illahraun og myndaðist árið 1226 en það dregur nafn sitt af því hversu illt það er yfirferðar vegna gljúps yfirborðs síns. Mosi er áberandi í hrauninu en hann er viðkvæmur og því þarf að umgangast hann með nærgætni.

Bláa lónið og umhverfi þess
Frá upphafi hefur Bláa Lónið lagt sig fram við að vernda náttúruna og sjá til þess að byggingar falli vel að umhverfinu. Arkitektinum Sigríði Sigþórsdóttur hefur sannarlega tekist það í hönnun sinni. Hraunveggur hlaðinn úr fjölda hraunhellna liggur í gegnum húsið og hefur vakið sérstaka athygli gesta. Lava Restaurant er byggður inn í bergið þannig að einn veggur hans er náttúrulegur hraunveggur. Brasilíski viðurinn Jatoba er mikið notaður í byggingunni vegna harðgers yfirborðs og sérstakrar áferðar.

Blue Lagoon verslanirnar
Hönnun Blue Lagoon verslananna skírskotar til Bláa Lónsins, bláa litarins og hraunsins. Hvíti liturinn vísar í kísilinn, sem er eitt af aðal hráefnum Blue Lagoon jarðsjávarins.

Viðurkenningar fyrir arkitektúr
Byggingar Bláa Lónsins hafa hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna en þar ber hæst Byggingalistarverðlaunin 2007 fyrir Bláa Lónið – Lækningalind.