Einstök upplifun

Bláa lónið

Virk hráefni

Blue Lagoon jarðsjórinn og einstök náttúruleg hráefni hans, kísill, steinefni og þörungar eru uppistaða Blue Lagoon húðvaranna. Jarðsjórinn er þekktur fyrir lækningamátt sinn og jákvæð áhrif á húðina. Blue Lagoon hráefnin eru ræktuð úr náttúruuppsprettunni með náttúruvænum, grænum aðferðum. Þessi aðferð endurspeglar fullkomið samspil náttúru og vísinda. Hún tryggir að við getum notað það sem náttúran færir okkur á hreinan og öruggan hátt til að gefa okkur heilsu, vellíðan og fegurð.

ÞÖRUNGAR | GEGN ÖLDRUN
ÞvörungarBlue Lagoon þörungar hafa áhrif gegn öldrun húðarinnar – bæði fyrirbyggjandi og viðgerandi. Þörungarnir draga úr niðurbroti kollagens í húðinni af völdum skaðlegra geisla sólar og örva náttúrulega kollagenmyndum húðarinnar 1. Þeir hjálpa að minnka fínar línur og hrukkur. Árangurinn er unglegri húð.

KÍSILL | STYRKIR
Kísill Blue Lagoon kísillinn verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum með því að styrkja náttúrulegt varnarlag hennar 1. Heilbrigð virkni varnarlags húðrinnar er einn af lykilþáttum í viðhaldi heilsu og útgeislun húðarinnar.

STEINEFNI | ENDURNÆRIR
Steinefni Blue Lagoon jarðsjórinn inniheldur einstaka samsetningu steinefna. Þau eru mikilvægur hluti Blue Lagoon húðvaranna því þau endurnæra og viðhalda jafnvægi húðarinnar. Árangurinn er heilbrigð húð sem geislar af náttúrulegri orku.
1in-vitro og in-vivo prófanir.