Blue Café
Blue Café býður upp á stórkostlegt útsýni yfir lónið og þægilegt andrúmsloft. Þar er hentugt að hinkra eftir samferðafólki sem er enn ofan í lóninu.
Á Blue Café er boðið upp á léttar veitingar: skyr boost, ávexti, samlokur, heita og kalda drykki, sætabrauð, pylsur og ís.
Á Blue Café er gestum boðið uppá þráðlausa nettengingu endurgjaldslaust.
Innibar
Lagoon Bar þjónar baðgestum og býður létta hressingu, svo sem drykki, ís, ávexti og samlokur sem hægt er að kaupa með aðgangsarmbandinu og greiða við brottför.
Á annarri hæð er hvíldarsvæði með þægilegum bekkjum og fallegu útsýni yfir lónið.
Útibar
Á glænýjum útibar er hægt að fá sér hressingu svo sem hinn sívinsæla Blue Lagoon kokteil eða nýkreistan ávaxtasafa. Fyrir þá sem þora er Energy skotið vítamin og hollusta beint í æð.
Á útibarnum er einnig hægt að fullkomna spa upplifunina með því að prófa eldfjallaskrúbb og þörungamaska. Eldfjallaskrúbburinn og þörungamaskinn eru afgreiddir frosnir, án allra umbúða. Hægt er að ylja þá í lófa sér eða dýfa ofan í lónið í stutta stund til að mýkja þá áður en borið er á húðina.
Náttúrulegur eldfjallaskrúbbur fjarlægir dauðar húðfrumur og styrkir varnarlag húðarinnar og laðar fram ljóma hennar.
Hvernig á að nota: Berið eldfjallaskrúbb varlega á andlitið og líkamann með hringlaga hreyfingum. Varist að bera skrúbb á augnsvæði. Hreinsið með jarðsjó.
Blue Lagoon þörungamaski er þekktur fyrir áhrif sín gegn öldrun húðarinnar. Hann örvar eigin kollagenframleiðslu húðarinnar og nærir hana.
Hvernig á að nota: Setjið þörungamaskann í lófann og berið á andlit, háls og herðar. Varist að bera maskann á augnsvæði. Látið þorna í 10-15 mínútur og hreinsið af með jarðsjó.