Einstök upplifun

Bláa lónið

Fjölskyldukort

Fjölskyldukortið gildir sem ótakmarkaður aðgangur í eitt ár í Bláa lónið fyrir tvo fullorðna og fjögur börn undir 16 ára aldri. Fjölskyldukortið kostar kr. 36.000,-

Fjölskyldukort Bláa lónsinsTvær leiðir eru í boði fyrir korthafa:

1. Tveir fullorðnir einstaklingar eru skráðir með nafni og kennitölu á kortið. Ef aðeins annar skráði korthafinn kýs að fara í Bláa lónið má hann bjóða öðrum fullorðnum með sér í stað hins skráða korthafans.

2. Einn fullorðinn einstaklingur er skráður með nafni og kennitölu á kortið og getur því ávallt boðið öðrum fullorðnum einstaklingi með sér.

Vinsamlegast athugið:

  • Korthafar verða að framvísa persónuskilríkjum í afgreiðslu.
  • Ekki er æskilegt að hver fullorðinn einstaklingur fari með fleiri en tvö börn 8 ára og yngri í Bláa lónið.
  • Öll börn 8 ára og yngri verða að vera með armkúta ofan í lóninu.