Gisting
Lækningalindin er staðsett í einungis 5 mínútna göngufjarlægð frá Bláa Lóninu. Umgjörð Lækningalindarinnar er engu lík - stórbrotin náttúra, orka og kyrrð. Lækningalindin er því tilvalinn staður fyrir þá sem vilja njóta þess að fá fullkomna slökun í einstöku umhverfi.
Lækningalindin býður 15 nýtískulega hönnuð, björt og rúmgóð herbergi. Öll herbergi hafa sérbaðherbergi með sturtu og verönd sem vísar út í ósnortna náttúru og mosavaxið hraun. Sjónvarp, sími, internettenging, hárblásari, sloppar, handklæði, ísskápur og hraðsuðuketill er í hverju herbergi. Í sameiginlegu rými er setustofa og borðsalur. Gestir hafa einnig aðgang að líkamsræktarsal.
Innifalið í gistingu er morgunverður og aðgangur í Bláa Lónið.
"Takk fyrir frábæran aðbúnað og yndislegt andrúmsloft. Bláa Lónið “heilar” og þið góða starfsfólk líka."
- Sigríður Friðjónsdóttir
Verð
| Vetur okt - apr |
Vor/haust maí og sept |
Sumar júní - ágúst |
|
| Einstaklingsherbergi | 22.200 kr. | 28.500 kr. | 31.700 kr. |
| Tveggja manna herbergi | 28.500 kr. | 31.700 kr. | 41.200 kr. |
Verð er með sköttum og gjöldum. Morgunmatur og aðgangur í Bláa Lónið er innifalinn í verði. Aukarúm: 12.000 kr. (vinsamlegast athugið hvort að aukarúm sé laust við bókun)
Bókanir og fyrirspurnir:
- hringið í síma +354 420 8900
- sendið okkur póst á reservations@bluelagoon.is
Við svörum öllum fyrirspurnum við fyrsta mögulega tækifæri.
Forföll skal boða 48 stundum fyrir komudag.




Út að borða