Gjafakort
Gjafakort Bláa Lónsins, Hreyfingar & Blue Lagoon spa er einstök gjöf. Fjölbreytt þjónusta og vörur eru í boði. Hægt er að fá gjafakort að ákveðinni upphæð, fyrir ákveðna þjónustu eða einfaldlega af þeirri samsetningu sem hentar best.
Gjafakortin er hægt að versla beint hér á netinu gegnum örugga greiðslugátt og við sendum gjafakortið heim að dyrum þér að kostnaðarlausu. Áætlaður afgreiðslutími er um 3-4 dagar.
Gjafakort Bláa Lónsins gildir fyrir:
- Aðgangi í Bláa Lónið
- Spa meðferðum og nuddi í Bláa Lóninu
- Aðgangi að Betri stofu Bláa Lónsins með einkaklefum & arinstofu
- Líkamsrækt í Hreyfingu
- Spa- og snyrtimeðferðum í Blue Lagoon spa í Hreyfingu
- Veitingum á LAVA restaurant
- Gistingu í Bláa Lóninu - lækningalind
- Blue Lagoon húðvörum
- Íslenskum hönnunarvörum í verslun á baðstað
- Einkaþjálfun í Hreyfingu
Gjafakortinu er pakkað í fallega öskju með borða.
Hugaðu vel um þína nánustu með gjöf sem veitir betri heilsu og vellíðan.
Söludeild getur einnig afgreitt gjafakort sérsniðið að þínum óskum. Hafið samband í síma 420 8800 eða sales@bluelagoon.is.
Einnig er hægt að versla gjafakort í verslun Bláa Lónsins að Laugavegi 15 í Reykjavík, í verslun í Bláa Lóninu og í Hreyfingu og Blue Lagoon Spa í Glæsibæ.