Heimsókn í Bláa Lónið
Armbönd
Við komu í Bláa Lónið færðu afhent armband sem virkar eins og lykill að skáp í búningsherbergi. Þú getur einnig notað armbandið til að greiða fyrir drykki og veitingar á meðan þú ert í lóninu og þarft því ekki að taka veski eða peninga með þér ofan í lónið.
Hámarksúttekt á hverju armbandi er 5.000 kr. og er upphæð gerð upp við brottför.
Gufubað
Í Bláa Lóninu eru 2 gufuböð. Annað er lítill hringlaga hellir, byggður úr hrauni. Bekkur liggur meðfram veggjunum og mjúk lýsing minnir á eldstæði.
Hitt gufubaðið hefur stóran glugga með fallegu útsýni sem vísar út að lóninu. Veggirnir eru hvítir og minna á kísil. Gufuböðin í Bláa Lóninu eru um 45°C.
Sauna
Þægileg sauna er í boði fyrir gesti Bláa Lónsins með fallegu útsýni yfir lónið.
Það er tilvalið að enda ferð í saunu með hressandi útisturtu.
Fossinn
Fossinn í Bláa Lóninu er alltaf vinsæll. Kraftur vatnsins veitir orkugefandi nudd fyrir háls og herðar.
Slökunarsvæði
Sérútbúið slökunarsvæði fyrir baðgesti er staðsett á efri hæð hússins, fyrir ofan veitingasölu.
Slökunarsvæðið er útbúið stólum sem hægt er að halla aftur og slaka vel á í hlýju, rólegu umhverfi.
Lagoon Bar
Lagoon Bar þjónustar baðgesti í Bláa Lóninu. Á innisvæði eru í boði léttar veitingar; drykkir, samlokur, ís og ávextir.
Á nýja útibarnum geta baðgestir fengið sér Blue Lagoon kokkteil og fleiri drykki. Gestir geta einnig prófað nýja eldjallahreinsinn og þörungamaskann, sem er einungis í boði á útibar.
Kísill
Kísil er hægt að nálgast í viðarboxum á nokkrum stöðum í Bláa Lóninu. Berið kísilinn á andlit og líkama, þó ekki augnsvæðið, og látið þorna í 5-10 mínútur.
Hreinn, hvítur kísillinn djúphreinsar og fjarlægir dauðar húðfrumur. Hann styrkir varnarlag húðarinnar á náttúrulegan hátt og laðar fram ljóma. Ekki er mælt með að kísill sé borinn í hár.
Hægt er að versla kísilmaska í verslunum Bláa Lónsins og í netverslun.
Nuddvík
Lítill hluti lónsins er stúkaður af en þar fer fram nudd og aðrar meðferðir. Við biðjum gesti vinsamlegast um að trufla ekki nuddarana og hjálpa okkur að gera nuddvíkina að rólegum og hljóðlátum stað.
Ef þú hefur áhuga á nuddi eða annarri meðferð bendum við þér á að spyrjast fyrir í móttöku Bláa Lónsins eða panta tíma með fyrirvara.
Yfirlitskort
Smelltu á kortið til að sjá það stærra.
