Umsagnir
Hér eru bréf sem okkur hafa borist frá ánægðum viðskiptavinum sem vilja deila með okkur upplifun sinni af Bláa lóninu. Senda umsögn.
Kæru góðu nuddarar!
Það var afar sæl lítil fjölskylda sem hélt heim að kvöldi einstaks dekurdags í Bláa Lóninu þann 22. júní 2005. Veðrið lék við okkur en toppurinn var að öll fjölskyldan fékk sér nudd! Tvíburarnir okkar sem eru á 8. ári sögðu þetta besta dags lífs síns og sváfu afar vært um nóttina! Það má geta þess að ég hafði aldrei heyrt af því að börnum stæði til boða að fá nudd hjá ykkur en þegar við vorum að skipuleggja ferð í lónið í tilefni afmæli pabbans rákumst við á þessa þjónustu á heimasíðunni ykkar. Ég fæ bara ekki nóg af því að segja fólki frá þessu! Við þökkum fyrir okkur og komum örugglega aftur :-)
Með nautnarkveðju, Ólöf, Sverrir, Arna Petra og Garðar Steinn, Reykjavík
Hér sendi ég ykkur upplifun fjölskyldunnar á ferð í Bláa Lónið.
Það var hráslagalegur laugardagur í febrúar. Rigning, rok, hraglandi... svona "týpískt" íslenskt, allt í bland. Eitt af börnunum er á lúðrasveitarmóti í íþróttahúsinu á Vogum á Vatnsleysuströnd. Restin af fjölskyldunni fer að hlusta á tónleika kl. 17.00.
Áður en lagt er af stað kemur upp hugmynd, afhverju ekki að taka með sunddót og skella okkur í Bláa Lónið. Nei það er örugglega búið að loka. Nei viti menn opið fram eftir kvöldi. Klukkan 18.30 er rent hlað á Bláa Lóninu og nú er öðruvísi um að litast en við erum vön. Venjulega tekur þessi dásamlegi blái "Bláalónslitur" á móti manni, nú mætir okkur grár og úfinn litur. Við höldum fyrst að það sé búið að setja lit út í vatnið. Höldum áfram og leggjum bílnum. Tja... rúmum klukkutíma síðar erum við aftur í bílnum, þreytt, sæl, svöng en eldhress. Þessi klukkutími var engu líkur. Við börðust um eins og tryllt dýr í frumskógi, því ekki vorum við eins og fiskar neðasjávar. Við börðumst við öldugang, rok og kulda. Engum fjölskyldumeðlimi var hlíft, allir út í enda að ná sér í kísil, allir í köldu bununa fyrir neðan útsýnispallinn, allir í leðjuna í horninu undir veitingastaðnum, allir í allar gufurnar (sem björguðu lífi móðurinnar sem var orðin hálffrosin og komin með eyrnarverk), allir inn í hellinn og hlaupa yfir brúnna í heitari potta, aftur í gufu og aftur í hina gufuna, bakka því öldugangurinn var svo ógurlegur, erfitt með einn krakka á handlegg sem ekki náði andanum. Mamman hugsar stöðugt um sælustundir í Bláa Lóninu síðasta sumar, 22 stiga hiti með hóp af svisslendingum, með krakkaskarann að búa til kastala úr sandinum, á pallinum að borða ís.....
Á þessari stundu er ótrúlegt að hugsa til þess að það skuli einhverntímann koma sumar. Síðustu daga hefur það þó hvarflað að manni... sólin og birtan á morgnanna gefur manni von. En hvað er þetta, afhverju þarf maður alltaf að vera að bíða eftir sumrinu... þessi vetrar -"Bláalónsferð" var FRÁBÆR. Öll fjölskyldan saman að berjast. Það var bara ekkert auðveldara að ná öllum "uppúr" í þessari ferð en í 22. stiga hitanum því þá átti jú eftir að keyra í þeim hita aftur í bæinn. Svo allt hefur sína KOSTI og galla.
Það voru svangir og sælir ferðalangar sem stoppuðu í pizzeríu og borðuðu síðbúinn kvöldmat kl. 22.00 ánægðir með sig.
Bláa Lónið vetur sumar vor og haust.
Við þökkum fyrir okkur. Fjölskyldan Snekkjuvogi
Kaldan laugardagsmorgun í febrúar fékk kærastan mín þá snilldarhugmynd að bjóða mér í saltskrúbb og nudd í Bláa lóninu. Mér leist nú bara vel á það þangað til að hún sagði mér, á miðri Reykjanesbrautinni, að meðferðin og nuddið færi fram úti undir berum himni ofan í lóninu. Ég fékk nú bara hroll og langaði mest að snúa við...en þar sem ég er nú karlmaður þá varð ég að sýnast HELJARMENNI.
Einum og hálfum tíma seinna líð ég í draumaheimi, nánar tiltekið á dýnu fljótandi á lóninu. Ég er með þrjú teppi og nokkur handklæði vafin utan um mig, húðin er endurnærð, vöðvarnir slakir, sálin í jafnvægi og ég horfi upp í bláan himin og nokkur ský á sveimi. Ég er EKKI með hroll, mér er EKKI kalt og ég er EKKI heljarmenni.
Ég mæli með nuddi eða meðferð í Bláa lóninu, þvílíkt snilld.
Takk fyrir mig,
Eysteinn, Reykjavík
Ég vil fyrir hönd vinkvenna minna þakka fyrir frábærar móttökur í Bláa lóninu.
Við komum sjö saman til að halda upp á okkar árlega skvísudag og erum við orðnar góðu vanar. Við fórum hver okkar í 20 mínútna nudd, fengum Bláa lóns kokteil út í lónið og slöppuðum svo vel af í vorsólinni. Nuddið var frábært og stemningin hjá okkur góð. Það voru endurnærðar kroppar sem yfirgáfu lónið tilbúnir fyrir áframhaldandi program.
Bestu óskir til ykkar í Bláa lóninu,
Guðný og skvísurnar
7. apríl 2004, Reykjavík
Það er svo merkilegt með Bláa Lónið að í hvert skipti sem maður kemur þangað þá spyr maður sig alltaf að því af hverju maður komi ekki oftar.
Frábær staður til að heimsækja og ekki síðri á veturna og í myrkri.
Kristín og Guðmundur
Við ákváðum fimm manna fjölskylda að fara í Bláa lónið og fá okkur svo að borða á eftir. Við byrjuðum á að dýfa okkur ofan í lónið sem var frábær upplifun hvort sem er fyrir unga sem aldna. Allir fundu eitthvað við sitt hæfi. Gufurnar og fossinn eru skemmtileg viðbót við það sem fyrir var.
Eftir baðið settumst við á veitingastaðinn og nutum útsýnisins. Á veitingastaðnum var fyrirtaks matur og mjög svo liðleg þjónusta. Allir fengu eitthvað við sitt hæfi og mun ég hiklaust mæla með ferð í Bláa lónið sem úrvals fjölskyldu afþreyingu.
Bestu þakkir,
Linda, Pétur, Ragnhildur, Lára og Hafsteinn