Spa-meðferðir og nudd
Vistkerfi Bláa lónsins er einstakt í heiminum, auðlind móður náttúru sem tengir okkur við náttúruöflin. Blue Lagoon jarðsjórinn er beislaður með samspili náttúru og vísinda sem gerir okkur kleift að njóta orku hans og virkra efna: steinefna, þörunga og kísils með Blue Lagoon spa-meðferðum og nuddi.
Blue Lagoon spa-meðferðir og nudd fara bæði fram inni og í Bláa lóninu, undir berum himni. Blue Lagoon húðvörur eru notaðar í öllum meðferðum.
Spa-meðferðir sem fara fram í lóninu eiga sér stað á sérhönnuðum bekk og nuddað er á dýnu sem flýtur í lóninu. Fleiri en ein meðferð geta farið fram samtímis sem gerir pörum kleift að njóta meðferðar saman. Sérstakar ábreiður eru notaðar til að halda þægilegum hita á líkamanum meðan á meðferð stendur.
Þyngdarleysi í steinefnaríku vatni, í náinni snertingu við sérstakt umhverfi Bláa lónsins, umkringd náttúruöflunum og hreinu lofti er einstök upplifun fyrir líkama og sál.
Til þess að meðferðirnar verði sem árangursríkast er ráðlagt að mæta 30 mínútum fyrir pantaðan tíma og nýta góðan tíma í slökun fyrir og eftir meðferð.
Blue Lagoon meðferðirnar er einnig í boði í Blue Lagoon spa í Hreyfingu, Reykjavík. Léttar handa- og fótameðferðir má einnnig fá í Blue Lagoon verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Forföll skal boða 24 stundum fyrir komudag. Verð geta breyst án fyrirvara.