Innimeðferðir
Partanudd
Streitulosandi nudd þar sem unnið er á svæðum sem þurfa sérstaka aðhlynningu, svo sem herðum, hálsi eða höfði. Notaður er Blue Lagoon jarðsjór og nuddolía. Nudd sem slakar á vöðvaspennu og dregur úr þreytu.
30 mín 6.000 kr.
Lúxus Blue Lagoon slökunarnudd
Djúpt slakandi lúxusnudd þar sem nuddað er með Blue Lagoon nuddolíu sem inniheldur virk efni jarðsjávarins og valdar ilmkjarnaolíur. Nuddið er byggt á sérstakri tækni sem hefur verið þróuð frá Blue Lagoon nuddmeðferðum í vatni. Lögð er áhersla á teygjur og langar strokur. Dekurnudd sem örvar blóðflæði og dregur úr streitu.
60 mín 11.250 kr.
Sænskt nudd
Slakandi nudd sem eykur blóðstreymi og örvar súrefnisupptöku. Notaður er Blue Lagoon jarðsjór og nuddolía. Nudd sem losar um spennu, örvar skilningavitin og stuðlar að jafnvægi líkama og sálar.
60 mín 11.250 kr.
Meðgöngunudd
Slakandi nudd fyrir verðandi mæður. Áhersla er lögð á að vinna á álagspunktum og að draga úr algengum einkennum meðgöngu s.s. þreytu, bakverkjum og bólgnum á fótum. Nuddað er með Blue Lagoon nuddolíu. Meðgöngunuddið veitir verðandi móður einstaka vellíðan.
60 mín 11.250 kr.
Vinsamlegast mætið í móttöku 30 mínútum fyrir pantaðan tíma. Forföll skal boða 24 stundum fyrir komudag.
Aðgangur í Bláa Lónið er ekki innifalinn í meðferðum.

