Einstök upplifun

Bláa lónið

Spa meðferðir flugstöð

Í Blue Lagoon versluninni í flugstöð er að finna spa svæði þar sem boðið er upp á orkumeðferðir fyrir hendur og fætur. Meðferðirnar byggja á hreinum Blue Lagoon jarðsjó og Blue Lagoon húðvörum. Þær hreinsa húðina og veita vellíðan og slökun.

Orkumeðferð fyrir hendur og handleggi (20 mín)

Orkumeðferð fyrir hendur í flugstöð FLE

Áhrifarík orkumeðferð sem hreinsar og nærir húðina og gefur henni fallega áferð. Hendurnar eru baðaðar upp úr steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og síðan nuddaðar upp úr sérstakri blöndu af saltkristöllum og náttúrulegum kísil sem hreinsa húðina og færa henni orku. Meðferðinni lýkur með nuddi. Einstök meðferð sem mýkir hendurnar og dregur úr litamismun og öldrunarmerkjum húðarinnar.
Verð kr. 3.000,   

Orkumeðferð fyrir fætur (20 mín)

Orkumeðferð fyrir fætur í flugstöð

Orkugefandi meðferð fyrir þreytta og bólgna fætur. Fæturnir eru baðaðir upp úr steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og síðan nuddaðir með kísil sem hreinsar húðina og gefur henni jafna og fallega áferð. Fæturnir eru síðan nuddaðir með orkugefandi nuddolíu. Meðferðin örvar blóðflæðið og stuðlar að auknu jafnvægi og vellíðan ásamt því að veita fullkomna slökun.
Verð kr. 3.500,-   

De luxe - orkumeðferð fyrir fætur (50 mín)

De luxe orkumeðferð fyrir fætur í flugstöð

Einstök orkumeðferð fyrir þreytta og bólgna fætur. Fæturnir eru baðaðir upp úr steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og síðan nuddaðir og vafðir með kísil sem hreinsar húðina og gefur henni jafnari áferð. Meðferðin endar með nuddi þar sem nuddað er upp úr orkugefandi nuddolíu. Meðferðin örvar blóðflæðið og stuðlar að auknu jafnvægi og vellíðan ásamt því að veita fullkomna slökun.
Verð kr. 6.900,-    

Bókanir
Vinsamlegast bókið spa-meðferð á staðnum eða í síma 420-8859.