Einstök upplifun

Bláa lónið

Spa-meðferðir í jarðsjó

Blue Lagoon slökunarnudd

Blue lagoon nudd í jarðsjó

Djúpt slakandi nudd þar sem notuð er Blue Lagoon nuddolía sem inniheldur virk efni Bláa Lónsins og valdar ilmkjarnaolíur. Sannkallað dekur fyrir líkama og sál.

10 mín.  3.200 kr. 
20 mín.  5.600 kr. 
30 mín.  8.000 kr.
60 mín.  15.000 kr. 
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Kísilnudd fyrir bak

Kísilnudd fyrir bak

Frískandi og endurnærandi nudd sem dregur úr streitu og bólgum í herðum og baki. Byrjað er á að skrúbba bakið með Blue Lagoon kísil sem hreinsar og endurnýjar ysta lag húðarinnar. Að því loknu er bakið nuddað með Blue Lagoon nuddolíu sem nærir og mýkir. Kísilnuddið hentar vel fyrir óhreina húð og veitir aukinn ljóma og heilbrigði.

30 mín.  10.800 kr.
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Kísilnudd fyrir fætur og fótleggi

Kísilnudd fyrir fæturFrískandi og endurnærandi nudd þar sem byrjað er á að nudda fætur og fótleggi með Blue Lagoon kísil sem hreinsar og endurnýjar húðina. Að því loknu eru þeir nuddaðir með Blue Lagoon nuddolíu sem mýkir og nærir. Meðferð sem veitir þreyttum fótum aukna orku.

30 mín.   10.800 kr.
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Saltskrúbb

Saltskrúbb í Bláa lóninuEndurnærandi og hreinsandi meðferð fyrir allan líkamann. Húðin er skrúbbuð með einstakri blöndu af Blue Lagoon söltum og olíum sem eykur blóðflæðið og gefur húðinni aukinn ljóma og fallegt yfirbragð.

30 mín.  10.800 kr.
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Kísil- og saltskrúbb ásamt nuddi

Kísil og saltskrúbb í Bláa lóninu

Endurnærandi og hreinsandi meðferð fyrir allan líkamann. Húðin er skrúbbuð með einstakri blöndu af Blue Lagoon söltum, kísil og olíu. Djúpt slakandi nudd, þar sem notuð er Blue Lagoon nuddolía, fylgir í kjölfarið. Sannkölluð dekurmeðferð sem örvar blóðflæðið, gefur húðinni aukinn ljóma og veitir almenna vellíðan.

60 mín. 19.500 kr. 
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Nærandi og slakandi þörungameðferð

Orkugefandi þvörungameðferð

Meðferð sem hreinsar og nærir húðina. Hún hefst á saltskrúbbi þar sem húðin er nudduð með einstakri blöndu af Blue Lagoon söltum og olíum. Eftir það eru líkaminn vafinn í nærandi þörungavafning á meðan hársvörður og andlit er nuddað. Meðferðin endar með 50 mínútna heilnuddi á dýnu ofan í lóninu.

120 mín.  30.000 kr. 
(einungis í boði frá mars-nóvember )
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Orkugefandi og styrkjandi kísilmeðferð

Orkugefandi kísilmeðferð

Meðferð sem slípar og styrkir húðina. Hún hefst á saltskrúbbi þar sem húðin er nudduð með einstakri blöndu af Blue Lagoon söltum og olíum. Eftir það er líkaminn vafinn í styrkjandi kísilvafning á meðan hársvörður og andlit er nuddað. Meðferðin endar með 50 mínútna heilnuddi á dýnu ofan í lóninu.

120 mín. 30.000 kr. 
(einungis í boði frá mars-nóvember )
(aðgangur í Bláa lónið ekki innifalinn)

Meðgöngunudd

Meðgöngunudd i Bláa lóninu

Slakandi nudd fyrir verðandi mæður sem fer fram á dýnu ofan í lóninu. Áhersla er lögð á að vinna á álagspunktum og að draga úr algengum einkennum meðgöngu s.s. þreytu, bakverkjum og bólgnum fótum. Í meðgöngunuddi er notuð Blue Lagoon nuddolía sem veitir verðandi móður einstaka vellíðan.

60 mín.  15.000 kr. 
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Dekurnudd fyrir börn 6-11 ára

Dekurnudd fyrir börn Slakandi og róandi nudd. Barninu er komið þægilega fyrir á dýnu ofan í lóninu. Nuddað er létt með Blue Lagoon nuddolíu og endað á slökun á dýnunni.

20 mín.  6.000 kr. 
(aðgangur í Bláa Lónið ekki innifalinn)

Bókanir og fyrirspurnir:

Við svörum öllum fyrirspurnum við fyrsta mögulega tækifæri.

Vinsamlegast mætið í móttöku 30 mínútum fyrir pantaðan tíma. Forföll skal boða 24 stundum fyrir komudag. Aðgangur í Bláa Lónið er ekki innifalinn í meðferðum.