Veitingar
Lava Restaurant & Bar
Lava Restaurant & Bar býður einstaka upplifun. Kokkarnir leggja áherslu á að nota ferskt, íslenskt hráefni og fjölbreyttur matseðillinn inniheldur allt frá léttum réttum til sælkeramáltíða. Staðurinn er byggður inn í klett og er einn veggurinn náttúrulegt hraun, sem eykur á sérstöðu staðarins. Glerstigi leiðir gesti á Lava Bar á annarri hæð þar sem þeir geta notið þess að fá sér drykk og slaka á í aðlaðandi umhverfi. Þak veitingastaðarins er útsýnispallur þar sem sést yfir Bláa lónið og fallegt umhverfið.
Blue Café
Blue Café býður stórkostlegt útsýni yfir lónið og þægilegt andrúmsloft. Í boði eru léttar, fljótlegar máltíðir svo sem súpur, salöt, baguette og mjólkurvörur. Á Blue Café er frí, þráðlaus nettenging.
Lagoon Bar
Lagoon Bar þjónar baðgestum og býður létta hressingu, svo sem drykki, ís, ávexti og samlokur sem hægt er að kaupa með aðgangsarmbandinu og greiða við brottför. Á annarri hæð er hvíldarsvæði með þægilegum bekkjum og fallegu útsýni yfir lónið.
Á glænýjum útibar er hægt að fá sér hressingu svo sem hinn sívinsæla Blue Lagoon kokteil eða nýkreistan ávaxtasafa. Fyrir þá sem þora þá er Energy skotið vítamin og hollusta beint í æð. Á útibarnum er einnig hægt að fullkomna spa upplifunina með því að prufa eldfjallaskrúbb og þörungamaska.
Náttúrulegur eldfjallaskrúbb fjarlægir dauðar húðfrumur og styrkir varnarlag húðarinnar og laðar fram ljóma hennar.
Hvernig á að nota: Berið eldfjallaskrúbb varlega á andlitið og líkamann með hringlaga hreyfingum. Varist að bera skrúbb á augnsvæði. Hreinsið með jarðsjó.
Blue Lagoon þörungamaski er þekktur fyrir áhrif sín gegn öldrun húðarinnar. Hann örvar eigin kollagenframleiðslu húðarinnar og nærir hana.
Hvernig á að nota: Setjið þörungamaskann í lófann og berið á andlit, háls og herðar. Varist að bera maskann á augnsvæði. Látið þorna í 10-15 mínútur og hreinsið með jarðsjó.