Bláa Lónið
Fundarsalur
Fundarsalurinn í Bláa Lóninu er staðsettur á annarri hæð og veitir fundargestum einstakt útsýni yfir lónið og fallegt umhverfið. Í salnum er hægt að koma á fundi fyrir allt að 90 þátttakendum. Salurinn er búinn sérhönnuðum fundahúsgögnum og fullkomnum tækjabúnaði til að mæta kröfum nútímans. Tölvutenging er fyrir hendi í salnum auk sýningartjalds, fletti- og tússtöflu og ræðupúlts.
Stjórnarherbergi
Stjórnarherbergið í Bláa Lóninu er einnig staðsett á annarri hæð og rúmar allt að 12 gesti.
Fundargestir hafa aðgang að svölum með fallegu útsýni yfir lónið og á nærliggjandi setustofu gefst fundargestum kost á að slaka á eftir góðan fund eða fá sér drykk í þægilegu umhverfi.
Fundir og slökun
Að sameina fundi og slökun er lykill að góðum árangri. Eftir árangursríkan fundardag er tilvalið að gefa sér tíma til þess að slaka á í lóninu og jafnvel bjóða fundargestum upp á nudd sem fer fram ofan í hlýju lóninu.
Kraftmikið umhverfið hreinsar hugann og nýjar og ferskar hugmyndir ná að streyma fram á ný.
LAVA veitingastaðurinn
Á LAVA veitingastaðnum í Bláa Lóninu er tilvalið fyrir fundarhópa að snæða saman hádegisverð eða kvöldverð að fundi loknum.
Í boði er spennandi hópamatseðill sem auðveldar skipuleggjendum funda að velja matseðil við hæfi.
Uppröðun
| Bíóuppstilling | Skólastofa | U uppröðun | Langborð | Hringborð | Standandi | Stærð | |
| Bláa Lónið fundarherbergi | 80 | 32 | 26 | 32 | 60 | 90 | 100 m2 |
| Bláa Lónið stjórnarherbergi |
- | - | - | 12 | - | - | 35 m2 |
| LAVA veitingastaður | 400 | - | - | 500 | 350 | 1000 | 300 m2 |
| Eldborg 1 | - | - | - | 12 | - | - | 50 m2 |
| Eldborg 2 | 60 | 30 | 24 | 60 | 60 | 100 | 90 m2 |
| Eldborg 3 | 120 | 50 | 32 | 100 | 90 | 200 | 170 m2 |
| Eldborg 2+3 | 220 | 100 | - | 160 | 150 | 400 | 260 m2 |
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband í síma 420 8815 eða sendið tölvupóst.
Innifalið í leiguverði er afnot af hljóðkerfi, ræðupúlt, skjávarpi, nettenging, hljóðnemi, sýningartjald, flettitafla, tússtafla, skrifblöð og pennar.
Bláa Lónið býður léttar veitingar, te, kaffi og/eða kvöldverð samkvæmt tilboði.
Tæknileg aðstoð er innifalin á meðan verið er að koma fundinum af stað en ef óskað er eftir tæknilegri aðstoð meðan á fundi stendur verður tekið gjald fyrir þá aðstoð.
Verðlisti gildir frá 01.01.2009, verð geta breyst án fyrirvara.
| Hálfur dagur | Heill dagur | |
| Eldborg (3 salir) | Kr. 250.000,- | |
| Bláa Lónið fundarherbergi | Kr. 24.000,- | Kr. 39.500,- |
| Bláa Lónið / LAVA stjórnarherbergi | Kr. 18.000,- | Kr. 29.900,- |
| Eldborg salur 1 | Kr. 18.000,- | Kr. 29.900,- |
| Eldborg salur 2 | Kr. 24.000,- | Kr. 39.500,- |
| Eldborg salur 3 | Kr. 39.000,- | Kr. 65.000,- |
| Eldborg salir 2 + 3 | Kr. 65.000,- | Kr. 99.000,- |
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband í síma 420 8800 eða sendið póst á sales@bluelagoon.is.







