Fundir

Eldborg

Stjórnendasalur í EldborgEldborg er staðsett í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Bláa Lóninu.

Þar er að finna 2 fundarsali auk 14 manna stjórnarherbergis, sem bjóða upp á fullkominn búnað til funda- og ráðstefnuhalds. 


 
Fundarsalur í EldborgStórkostlegt útsýni er úr sölum Eldborgar en í gegnum háa glerveggi fær stórbrotin náttúran að njóta sín.

Salirnir eru skemmtilega hannaðir og minna á náttúrulegt umhverfið.


 
Veislusalur í EldborgSalirnir í Eldborg henta einnig vel fyrir veislur og mannfagnað. Þar eru tveir salir sem sameina má í einn stóran sal sem rúmar allt að 200 gesti í sæti og 400 standandi gesti.



Eldborg í SvartsengiStaðsetningin er einkar hentug fyrir fundi og ráðstefnur. Kyrrlátt umhverfið er þægilega nálægt höfuðborgar-svæðinu og fjarri öllu amstri.

Salirnir henta því vel fyrir t.d. stefnumótunarfundi og námskeið þar sem mikilvægt er að geta unnið vel og fundað án utanaðkomandi áreitis.



Uppröðun

Bíóuppstilling Skólastofa U -uppröðun Langborð Hringborð Standandi Stærð   
Bláa Lónið  fundarherbergi 80 32 26 32 60 90 100 m2
Bláa Lónið 
stjórnarherbergi
- - - 12 - - 35 m2
LAVA veitingastaður - - - 300 250 600 300 m2
Eldborg 1 - - - 12 - - 50 m2
Eldborg 2 60 30 24 60 60 100 90 m2
Eldborg 3 120 50 32 100 90 200 170 m2
Eldborg 2+3 220 100 - 160 150 400 260 m2

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband í síma 420 8815  eða sendið tölvupóst.