Fundir

Ráðstefnur

Ráðstefnu- og fundarsalur Bláa LónsinsKraftmikið umhverfið skilar sér inn í fundar- og ráðstefnusali Bláa Lónins. Orkan streymir um salina og veitir fundargestum þann innblástur og orku sem þarf til þess að gera fundinn sem árangusríkastan.

Bláa Lónið býður upp á glæsilega fundarsali í Bláa Lóninu og í Eldborg, skammt frá Bláa Lóninu (5 mín. akstur).



Ráðstefnu- og fundarsalur í EldborgSalirnir henta vel fyrir fundi, ráðstefnur, veislur og annan mannfagnað. Þeir eru allir búnir góðum tækjabúnaði m.a. þráðlausu háhraða internetsambandi, notendum að kostnaðarlausu.

Staðsetning salanna er einkar hentug fyrir fundi og ráðstefnur. Kyrrlátt umhverfið er þægilega nálægt höfuðborgarsvæðinu og fjarri öllu amstri. Salirnir henta því vel fyrir t.d. stefnumótunarfundi og námskeið þar sem mikilvægt er að geta unnið vel og                                                                                   fundað án utanaðkomandi áreitis.

"Góðar hugmyndir gegna lykilhlutverki hjá Latabæ. Slökun í Bláa lóninu endurnærir og hreinsar hugann og er frábær leið til að fá hugmyndirnar til að flæða."
- Magnús Scheving, forstjóri Latabæjar



Lava veitingastaður í Bláa lóninu

  • Rúmgóðir funda- og ráðstefnusalir með útsýni yfir stórbrotið umhverfið
  • 14 manna stjórnarherbergi
  • Tilvalinn staður þar sem hægt er að sameina fundi og slökun
  • Glæsilegur veitingastaður sem býður upp á fjölbreytta og spennandi hópamatseðla
  • Veislur og annar mannfagnaður í einstöku umhverfi


Reynslumikið starfsfólk sér um að uppfylla tæknilegar þarfir viðskiptavina og ráðleggja um atriði er varða skipulagningu og framkvæmd. Bláa Lónið getur séð um að skipuleggja akstur fyrir fyrirtæki og stofnanir á fundarstað ef þess er óskað. Nánari upplýsingar í síma 420 8800 eða gegnum tölvupóst sales@bluelagoon.is