Fundir

Viðburðir

Reynslumikið starfsfólk sér um að gera viðburðinn þinn ógleymanlegan

Ævintýralega skreyttur salur LAVA í boði félags matreiðslumeistara er kjörin staður til að halda þína árshátíð. Boðið er uppá úrvals veisluþjónustu. Þú getur skapað stemninguna eða leyft okkur að skapa hana með einkennandi þema fyrir þitt fyrirtæki.

Ævintýralegt umhverfi og húsakynni Bláa Lónsins getur gert þína árshátíð ógleymanlega.


 
Samstarf ID og Bláa lónsins var metnaðarfullt verkefni þar sem íslenski dansflokkurinn sýndi verkið "Transaquania". 

Fyrri hluti verksins fór fram á yfirborði lónsins þar sem gestir fylgdust með ofan í lóninu en seinni hluti verksins fór fram í glæsilegum sal LAVA.



Útgáfutónleikar DJ Margeirs í tilefni af útgáfu Blue Lagoon Soundtrack 2 voru haldnir í Bláa Lóninu í góðri stemningu. 

Gestir nutu tónlistar og veðurblíðunnar í einstöku náttúrulegu umhverfi.


Hápunktur Norðurlandaþings húðlækna fór fram í Bláa lóninu þar sem allir gestir fóru í lónið og enduðu svo gott þing með fjörugri veislu á LAVA.


Iceland AirwavesUmhverfi Bláa Lónsins hefur skapað ógleymanlega atburði af öllu tagi, þar ber að nefna viðburð eins og Iceland Airwaves tónlistarhátíðina. Þar sem Bláa Lónið heldur ómissandi Airwaves tónleika fyrir baðgesti árlega, með komu þúsunda manna sem skemmta sér konunglega. Svo ber að nefna að Jónsmessuganga og fjallahjólakeppni eru reglulega haldnir í Bláa Lóninu.

 


 
Gönguferð við Bláa lóniðGönguferðir í umhverfi Bláa Lónsins bjóða þér upp á náttúrusýningu, þar sem þú getur notið náttúrunnar sem geymist þar við á þessu einstaka svæði.

Skipulagðar gönguferðir Bláa Lónsins hafa verið í boði á svæðinu og hefur það tekist vel, göngugarpar vilja ekki missa af þessari einstakri göngu.

 


 
Gifting í Bláa lóniuEf það er brúðkaup í vændum þá er LAVA rómantísk og góð staðsetning fyrir þitt brúðkaup. Við bjóðum þér upp á fallegt umhverfi í Bláa Lóninu þar sm hraunið teygir sig inn í veisluna og skapar skemmtilega stemningu. Við getum uppfyllt þína ósk um skreytingar eða þemað. Þú yrðir svo auðvitað í höndum fagaðila þar sem gæði og góð þjónusta er hafð fyrir stafni.
Njóttu þess að vera í fallegu umhverfi þar sem þú getur geymt minningarnar um ókomin ár.



 Skákmót í Bláa lóninu Bláa Lóns skákið vakti verðskuldaða athygli þar sem leikmenn gátu spilað ofan í hlýju lóninu með náttúruna aðeins til sjónar.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband í síma 420 8815 eða sendið tölvupóst.