Einstakur lækningamáttur

Lækningalind

Árangur

Meðferðin í Bláa Lóninu - lækningalind hefur reynst árangursrík fyrir fjölmarga einstaklinga sem þjást af psoriasis. Hér að neðan má sjá ótrúlegan árangur eftir aðeins 3-4 vikna meðferð. 


                         Árangur af psoriasis meðferð fyrir 1      Árangur af psoriasis meðferð eftir 1

                     Árangur af psoriasis meðferð fyrir 2      Árangur af psoriasis meðferð eftir 2

   

Nokkrar umsagnir

6. október 2004
Ég hef í nokkur ár stundað öðru hvoru böð í Bláa Lóninu vegna psoriasis útbrota, en með misjöfnum árangri sem er trúlega sjálfum mér að kenna. En á síðastliðnu ári ákvað ég í samráði við lækni og hjúkrunarfræðinga á staðnum að mæta 3. sinnum í viku í nokkrar vikur samfleytt. Þá fór allt að gerast, sárin fóru að gróa og hverfa síðan, og ekki síst, ég fór að trúa þessum lækningamætti sjálfur.
Nú er ég byrjaður aftur eftir hálfsárs hlé og sýnilegur bati er byrjaður.
Ég kann vel við mig í "skúrnum" og starfsfólkið er einstaklega alúðlegt og ég vona að það breytist ekki þegar flutt verður í nýtt og fínt hús.

Guðmundur Kr. Guðmundsson arkitekt


Góðan dag!

Ég var að skoða heimasíðuna ykkar og vil gjarnan vitna um frábærar vörur. Keypti fyrst meðferðarsjampó vegna flösu og verkaði það frábærlega. Nota líka venjulega sjampóið og hárnæringuna og líkar mjög vel. Hef húðsjúkdóminn rósroða (rosacea) í andliti. Hef prófað alls konar krem en andlitslínan gerði kraftaverk á andlitinu á mér. Notaði fyrst andlitshreinsinn og létta rakakremið (vitalizer) en hef nú í rúman mánuð notað anti-aging og finnst það betra og er nú bólulaus og slétt í fyrsta sinn í mörg ár. Hafði alltaf verið sagt að ég hefði feita húð en veit núna að hún var of þurr og er hún núna í góðu jafnvægi. Get nú notað farða en það hafði verið ómögulegt því húðin var svo feit á yfirborðinu að hann hljóp strax í kekki. Nú helst hann fínn allan daginn.

Með bestu kveðju,
Auður Bjarnadóttir, hjfr. Reykjavík