Einstakur lækningamáttur

Lækningalind

Rannsóknir

Niðurstöður vísindarannsókna hafa fært sönnur á að reglubundin böð í Blue Lagoon jarðsjó eru áhrifarík meðferð við psoriasis samanborið við UVB ljósaböð, þekkta meðferð við psoriasis. Með því að blanda þessum tveimur meðferðum saman næst enn betri árangur. Rannsóknirnar lögðu grunninn að opinberri viðurkenningu Blue Lagoon meðferðarinnar sem meðferðarvalkosts við psoriasis. 

Myndin sýnir áhrif Blue Lagoon psoriasis meðferðar á PASI gildi sjúklinga samanborið við UVB ljósaböð.

Rannsóknirnar hafa sýnt fram á verulegan bata samkvæmt hlutlægum mælikvarða er kallast Psoriasis Area Severity Index (PASI). Rannsóknir á lækningamætti, efnasamsetningu og lífríki jarðsjávarins sýna að hann er einstakur í heiminum hvað alla þessa þætti varðar.


Blue Lagoon jarðsjór


Greiningar á efnasamsetningu Blue Lagoon jarðsjávarins staðfesta að hann er efnaríkur og inniheldur einstök virk efni: steinefni, kísil og þörunga. Þá staðfesta vísindalegar rannsóknir á jarðsjónum að lífríki hans er einstakt, þar sem um 60% lífvera þess eru nýjar tegundir.

Smelltu hér til að skoða rannsókn á áhrifum Bláa lónsins á psoriasis. Rannsóknin var framkvæmd af Bárði Sigurgeirssyni Dr.med., Sjúkrahúsi Reykjavíkur og göngudeild Bláa Lónsins og Jóni H. Ólafssyni Dr. med., Landspítalanum.


Rannsóknir á ensku

Grether-Beck. S et. al.
Bioactive molecules from the Blue Lagoon: in vitro and in vivo assessment of silica mud and microalgae extracts for their effects on skin barrier function and prevention of skin ageing. Accepted for publication 18th of December 2007

Sigurgeirsson B, Olafsson JH.
The Blue Lagoon and Psoriasis. Grindavik: The Blue Lagoon Dermatology Clinic, 1998:1-12.

Olafsson JH, Sigurgeirsson B.
Psoriasis treatment in a geothermal lagoon. Five years experience from the Blue lagoon i Iceland. Forum for Nord Derm Ven 1998; 3:15-19.

Olafsson JH, Sigurgeirsson B, Palsdottir R.
Psoriasis treatment: bathing in a thermal lagoon combined with UVB, versus UVB treatment only. Acta Derm Venereol 1996; 76:228-30.

Olafsson JH, Sigurgeirsson B, Palsdottir R.
The effect of bathing in a thermal lagoon in Iceland has on psoriasis. A preliminary study. J Eur Acad Dermatol Venereol 1994; 3:460-464.

Rannsókn á þýsku
Sigurgeirsson B, Olafsson JH. Die Blaue Lagune und Psoriasis - Grindavik: The Blue Lagoon Dermatology Clinic, 1998:1-12.

Fréttabréf
Lækningalindar