Einstakur lækningamáttur

Lækningalind

Umsagnir gesta

Hér fyrir neðan eru bréf frá nokkrum gestum Bláa Lónsins - lækningalindar og öðrum viðskiptavinum sem allir hafa reynslu af Blue Lagoon psoriasis meðferðinni og/eða notkun Blue Lagoon húðvara. Senda umsögn.

"Á morgun er myndatakan, verð að muna að hafa hendur fyrir aftan bak og taka make-ið með. Vonandi dugar það til að þekja rauðu blettina á nefinu. Þeir skína alltaf í gegn þessir leiðinda blettir, þetta bölvaða psoriasis".

Nú tíu árum síðar er þessi upplifun slæm minning. Í dag fer ég sjálfsörugg í myndatökur og brosi make-laus mínu blíðasta. Allt vegna þess að ég stunda Göngudeild Bláa Lónsins. Í mínum huga er Bláa Lónið kraftaverkastaður.

Psoriasis hefur verið fylgifiskur minn síðustu þrjátíu ár. Útbrotin verið frekar áberandi og óþægileg þar til fyrir tíu árum, eða frá því að ég fór að stunda Göngudeild Bláa Lónsins. Útbrotin eru alltaf til staðar, en böðun í Lóninu ásamt ljósameðferð halda þeim í skefjum.
Áður fyrr þurfti ég að leggjast inn á sjúkrahús í 3-4 vikur til að fá bata, sem dugði skammt. Í útskriftargjöf fékk ég alls konar krem og áburði, mismunandi illa lyktandi, sem ég átti að nota heima.

Í dag fer ég í Lónið 2-5 sinnum í viku allt eftir því hve virkur sjúkdómurinn er. Ég baða mig í klukkustund og fer síðan í UVB-ljósameðferð. Engir illa lyktandi áburðir og áhættan af ljósunum í lágmarki, þar sem Lónið og ljósin virka saman er ljósaþörfin minni og þar með hættan á aukaverkunum þeirra vegna.

Við sem erum svo ,,heppin" að hafa psoriasis og stundum Bláa Lónið spjöllum saman. Okkur er vel til vina og hlýtt hverju til annars. Segjum stundum í gríni að við myndum ekki þekkja hvert annað í fötum. Öll erum við sammála um að meðferðin virki og sé frekar þægileg. Fyrir flest okkar er þetta meðferð sem dugar og hefur að okkar áliti minnstu aukaverkanir.

,,Ég bruna eftir Grindarvíkurveginum á leið í Bláa Lónið. Hvað ég hlakka til að hvíla mig eftir erilsaman dag. Liggja í heitu vatninu, tala um allt og ekkert við hina. Finna hvernig náttúruleg efni Lónsins leika um húðina og þreytan líður úr líkamanum, hvernig vöðvarnir slakna og streitan hverfur á braut. Hvernig getur meðferð við svona erfiðum sjúkdómi verið svona þægileg?".

Guðrún Guðmundsdóttir, psoriasis-sjúklingur


Bláa Lónið - ótrúleg heilsulind

- Það blæðir úr augabrúninni á þér, segir samstarfskona mín og horfir yfir tölvuna.
- Ó...já... ég er með psoriasis.
- Er ekki til krem á þetta eða hvað?
- Juú...en...
- Blessuð settu á þetta plástur.

- Rosalega er bólgin á þér hendin.
- Já, þetta er svona liðbólga.
- Af hverju gengurðu svona skökk?
- Ég ofreyndi mig í leikfimi í gær,nefni ekki að liðbólgur séu alveg að gera út af við mig.

- Psoriasis, er það smitandi?
- Nei, þetta er bara húðsjúkdómur.
- Oj, ekki smart.

Í viðtali vegna vinnu. Reyni að láta lítið fara fyrir höndunum, svo það sjáist ekki að þær eru illa bólgnar og psoriasis hálfblæðandi á hnúunum. - Sjúkdómar? Hristi hausinn. Engir sjúkdómar. Psoriasis og liðagigt eru auðvitað ekki sjúkdómar. Dettur ekki í hug að segja að ég hafi rúllað mér fram úr rúminu klukkan hálf fjögur í nótt til að liðka mig fyrir daginn.

Í júní 2004 hafði ég ekki gengið í pilsi í þrjú ár. Of mikið psoriasis á fótunum. Ekki einu sinni tvennar sokkabuxur gátu hulið það. Svo - skyndilega þann 7. september mæti ég í móttöku hjá sænska kónginum, Sylvíu og prinsessunni; í pilsi (6000 kr. úr Kringlunni).
God dag...god dag...hneigi mig fyrir kóngsa. Hvað gerðist? Jú ég fór að stunda Bláa lónið af einhverju viti. Out Standing Patient Clinic.

Ég tala næstum um það á hverjum degi. Við alla sem ég hitti. Kannski er fólk orðið leitt á þessu. En þegar maður er búinn að hafa meiri og minni verki í svo til öllu stoðkerfinu í mörg herrans ár, þá getur maður bara ekki annað en talað um að í Bláa lóninu fái maður meina sinna bót. Ekki bara það að útbrotin hverfi, grói, heldur hjaðna bólgurnar í liðunum og verkirnir verða hverfandi. Síðan ég byrjaði að stunda Bláa lónið í júlí s.l. hefur enginn liður bólgnað og ég hef verið svo til verkjalaus. Og geng í pilsi. Einar sokkabuxur nægja. Getur fólk nú skilið gleði mína!

Það er hjúkrunarfólk á staðnum sem umvefur mann, er svo ótrúlega velviljað og hvetjandi.
Það hjálpar líka. Vatnið hefur góð áhrif á húðina, hún verður silkimjúk, allir vöðvar styrkjast því það er auðvitað upplagt að gera teygjuæfingar í vatninu.

Svo getur maður spurt sig: Hvað er í þessu lóni sem lætur psoriasis og verki hverfa?
Ég á ekkert svar við því. Enda er mér nákvæmlega sama. Ég er verkjalaus. Enginn segir: Svakalega eru öklarnir á þér bólgnir. Enginn spyr: Af hverju ertu svona hölt? Og heldur enginn spyr: Hvað er á höndunum á þér? Er það smitandi?

Og hér með hvet ég alla til að fara í Bláa lónið. Ekki bara þá sem eru með psoriasis. Einnig alla sem eru með gigt af einhverju tagi, streytuverki, bakmeiðsli eða bara þá sem eru við ágæta heilsu. Það hressir, bætir og kætir að fara í Bláa lónið.

Anna Fr. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri
Reykjavík


6. október 2004
Ég hef í nokkur ár stundað öðru hvoru böð í Bláa Lóninu vegna psoriasis útbrota, en með misjöfnum árangri sem er trúlega sjálfum mér að kenna. En á síðastliðnu ári ákvað ég í samráði við lækni og hjúkrunarfræðinga á staðnum að mæta 3. sinnum í viku í nokkrar vikur samfleytt. Þá fór allt að gerast, sárin fóru að gróa og hverfa síðan, og ekki síst, ég fór að trúa þessum lækningamætti sjálfur.
Nú er ég byrjaður aftur eftir hálfsárs hlé og sýnilegur bati er byrjaður.
Ég kann vel við mig í "skúrnum" og starfsfólkið er einstaklega alúðlegt og ég vona að það breytist ekki þegar flutt verður í nýtt og fínt hús.

Guðmundur Kr. Guðmundsson arkitekt


Góðan dag!

Ég var að skoða heimasíðuna ykkar og vil gjarnan vitna um frábærar vörur. Keypti fyrst meðferðarsjampó vegna flösu og verkaði það frábærlega. Nota líka venjulega sjampóið og hárnæringuna og líkar mjög vel. Hef húðsjúkdóminn rósroða (rosacea) í andliti. Hef prófað alls konar krem en andlitslínan gerði kraftaverk á andlitinu á mér. Notaði fyrst andlitshreinsinn og létta rakakremið (vitalizer) en hef nú í rúman mánuð notað anti-aging og finnst það betra og er nú bólulaus og slétt í fyrsta sinn í mörg ár. Hafði alltaf verið sagt að ég hefði feita húð en veit núna að hún var of þurr og er hún núna í góðu jafnvægi. Get nú notað farða en það hafði verið ómögulegt því húðin var svo feit á yfirborðinu að hann hljóp strax í kekki. Nú helst hann fínn allan daginn.

Með bestu kveðju,
Auður Bjarnadóttir, hjfr. Reykjavík


I just want to let you know, these products are for my daughter, she is 21 years old and starting from her birth on suffering very badly from neurodermitis. she had a bad medical history all the time. but blue lagoons-products - which we got to know by chance two months ago through a friend in island are doing so much better for her - they are for the first time in her life making her feel better. and I can tell you we tried a lot all over the world. so we are very grateful about blue lagoon and also about the possibility of online ordering. thank you very much!

With best regards from H.L. Austria<


I best like mineral intensive cream, because I have psoriasis on my hands and after I have bought your cream it nearly has gone.

I began with it in the beginning of April (now is September).

Best regards,
Annie Nielsen, Denmark


I have a slight psoriasis problem. After a long search to find products to help my skin condition, a friend who visited Iceland that year, told me about the Blue Lagoon. Anxiously I've ordered some products and I can only say that they work. Still I can only use non-perfumed products, but my problem is under control. THANK YOU!

Petra Holland, Germany


My favourite blue lagoon product is quick repair because it heals my psoriasis spots. So I am very pleased with this product it calms my skin and helps.

Kind regards,
Sjaak de Swart, The Netherlands


I just wanted to say thank you for your wonderful range of products. I have had eczema all over my body but mainly my feet for over twenty years (and I'm 22 now!). I have tried many medications including steroid creams but nothing cleared the condition. My mother brought me some of the Blue Lagoon mineral derm bar and moisturising cream after a recent trip to Iceland and after 3 weeks of using it I no longer have eczema anywhere. I didn't believe it would work but I'm very happy!

Thank you so much,
Helen, UK

Fréttabréf
Lækningalindar