Viðtöl við gesti
Blue Lagoon meðferðin breytti lífi mínu
- segir Alex Polson, meðferðargestur í lækningalind
Alexander John Polson hefur verið tíður gestur í Bláa Lóninu - lækningalind undanfarin átta ár. Alex kemur frá Hjaltlandseyjum en hann hefur þjáðst af psoriasis sjúkdómnum í 30 ár. Hann hefur prufað margar mismunandi meðferðir með ófullnægjandi árangri. "Ég hef prufað margar tegundir af sterakremum og hef einnig reynt tjörumeðferðir en þessar meðferðir hafa ekki gefið góðan árangur. Læknirinn minn mælti svo með því að fara í Dauðahafið og þar náði ég betri árangri en samt ekki nógu góðum," segir Alex.
Alex hefur starfað sem útgerðamaður og eitt sinn á ferð sinni um Noreg hitti hann mann sem benti honum á Blue Lagoon psoriasis meðferðina. "Hann tók eftir því að ég var með psoriasis og spurði hvort ég hefði heyrt um Blue Lagoon meðferðina. Ég hafði ekki gert það og fór því á Internetið og leitaði mér upplýsinga. Í gegnum vefsíðu Bláa Lónsins komst ég í samband við starfsmann Bláa Lónsins sem gaf mér nánari upplýsingar," segir Alex. Honum fannst þetta spennandi kostur og stuttu seinna var hann kominn hingað til lands í þriggja vikna meðferð. Hann segir að um leið og hann byrjaði í meðferð hafi hann séð góðan árangur. "Ég vissi strax að meðferðin yrði áhrifarík. Ég baðaði mig í lóninu, fór í ljósameðferðir og notaði Blue Lagoon húðvörurnar og eftir þrjár vikur voru allir psoriasis blettir horfnir," segir Alex. Hann segir að meðferðin hafi ekki einungis haft góð áhrif á húðina heldur einnig á almenna vellíðan. "Ég hafði t.d. alltaf átt erfitt með svefn en um leið og ég hóf meðferðina fór ég að sofa mun betur," segir hann.
Eftir fyrstu meðferðina kom Alex árlega nokkrar vikur í senn og árið 2002 ákvað hann að kaupa sér hús í Grindavík. "Mér líkar vel á Íslandi og þar sem ég var ákveðinn í að halda meðferðinni áfram ákvað ég að kaupa hús hérna í grenndinni. Ég dvel á Íslandi í 4-6 mánuði á ári og þann tíma nota ég til þess að koma í meðferð og viðhalda árangrinum," segir Alex.
Alex segir að Blue Lagoon meðferðin hafi breytt lífi hans umtalsvert. Einn mikilvægasti þátturinn er að hann á nú auðveldara með að umgangast annað fólk. "Ég talaði aldrei um sjúkdóminn við aðra og forðaðist t.d. að fara í frí með fjölskyldu og vinum. Ég hélt mig einnig frá sundstöðum þar sem ég vildi ekki að fólk sæi líkama minn þakinn psoriasis," segir hann. Hann segist mæla með Blue Lagoon meðferðinni við hvern sem er. "Maður finnur hvað maður er velkominn hérna í lækningalindinni og starfsfólkið er mjög indælt."
"Ég er mun ánægðari með líf mitt í dag og ég nýt þess að búa í Grindavík. Ísland er fallegt land og allt svo hreint og mér finnst frábært að geta séð sjóinn daglega. Ég hef einnig ferðast talsvert um landið og hef mjög gaman af því að veiða," segir Alex að lokum
Saga Victoriu Eprile
Victoria Eprile er ellefu ára stúlka frá Skotlandi sem undanfarin 3 ár hefur þurft að glíma við psoriasis. Það var ekki fyrr en hún fór í meðferð í heilsulindinni sem Victoria fór að lagast af þessum slæma húðsjúkdómi.
Fyrir þremur árum varð Victoria vör við að húðin á henni var sérstaklega þurr og rauð undir olnbogunum og komst síðar að því að hún var með psoriasis. Fljótlega fór húðsjúkdómurinn að breiðast út þar til 75% af líkamanum var orðinn þakinn psoriasis. Victoria leitaði til lækna sem vildu lítið fyrir hana gera og útveguðu henni ýmis krem til þess að bera á líkamann en án árangus. Hún fylltist miklu vonleysi og leið mjög illa yfir því að fá enga hjálp. Það breyttist hins vegar þegar faðir hennar, Mark Eprile, rakst á grein í bresku tímariti sem fjallaði um Bláa Lónið - heilsulind og komst að því að í Bláa Lóninu - heilsulind er boðið upp á psoriasismeðferð. Þar sem hann gat ekki lengur horft upp á ástand dóttur sinnar, ákvað hann að fara með Victoriu til Íslands í Blue Lagoon psoriasismeðferð.
Victoria baðaði sig í lóni heilsulindar í tvær klukkustundir á dag sex daga vikunnar, fékk ljósameðferð og notaði Blue Lagoon húðverndarvörur sem hafa gefist mjög vel fyrir psoriasis sjúklinga. Í byrjun hafði Victoria ákveðið að dvelja aðeins eina viku í meðferð en læknar ráðlögðu henni að dvelja 3-4 vikur og ná þannig betri árangri. Þremur vikum síðar var húðsjúkdómurinn nánast horfinn og varla hægt að sjá að Victoria hefði nokkurn tíma þjáðst af psoriasis. "Það er ótrúlegt að sjá muninn á Victoriu frá því hún kom í meðferðina," segir Ragnheiður Alfreðsdóttir, deildarstjóri heilbrigðisþjónustu, "það er einnig ánægjulegt að sjá hversu mikið persónuleikinn hefur breyst, hún er orðinn mun opnari og glaðlyndari."
Victoria segir að húðsjúkdómurinn hafi haft mikil áhrif á líf sitt. Henni leið illa í skólanum og hafði misst áhugann á náminu, skólafélagarnir stríddu henni og hún hætti í danstímum vegna þess að hinar stelpurnar vildu ekki vera nálægt henni. Móður Victoriu, Mahiri Robertson, fannst sorglegt að horfa upp á dóttur sína og reyndi að hressa hana við án árangus. "Það var hræðilegt að sjá hvað henni leið illa, hún vildi helst ekki fara út, hafði litla matarlyst og svaf illa. Það er yndislegt að sjá hana eftir að hún byrjaði í meðferðinni og sérstaklega að sjá hana brosa á ný," segir Mahiri, sem tók við af Mark síðustu tvær vikurnar.
Victoria segir að hún hafi ekki viljað gera sér of miklar vonir fyrir meðferðina þar sem hún vildi ekki verða fyrir vonbrigðum. Hún var því mjög ánægð þegar hún sá að meðferðin virkaði vel. "Ég er mjög undrandi yfir árangrinum og ég trúi varla að húðsjúkdómurinn sé næstum horfinn," segir Victoria.
Victoria er nú á leið heim til Skotlands eftir fjögurra vikna meðferð. Victoria tekur Blue Lagoon húðverndarvörur með sér heim og mun að öllum líkindum halda áfram í ljósameðferð í Skotlandi. "Við viljum að læknar í Skotlandi viti að til er árangursrík meðferð við psoriasis svo þeir geti miðlað þeim upplýsingum til þeirra sem þjást af þessum slæma húðsjúkdómi," segir Victoria, sem er farin að hlakka til heimferðar og byrja í skólanum á ný.