Ný psoriasisrannsókn
Bláa Lónið vinnur nú að viðamikilli klínískri rannsókn á áhrifum Bláa Lóns psoriameðferðarinnar. Rannsóknin er unnin í samstarfi við Landspítala – háskólasjúkrahús og er hún jafnframt doktorsverkefni Jennu Huldar Eysteinsdóttur læknis. Rannsóknin er styrkt af Tækniþróunarsjóði og Vísindasjóði Landspítalans.
Tilgangur rannsóknarinnar er að bæta við fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á áhrifum Bláa Lóns psoriasismeðferðarinnar.Bláa Lóns psoriasismeðferðin verður borin saman við hefðbundna ljósameðferð til að meta áhrif meðferðarinnar. Samanburður verður gerður á áhrifum Bláa Lóns psoriasismeðferðar og hefðbundinni ljósameðferð til að meta áhrif meðferðarinnar. Um þrjá meðferðarhópa er að ræða.
Hópur 1: Bláa Lóns psoriasismeðferð þrisvar sinnum í viku í 6 vikur í Lækningalind Bláa Lónsins og notkun á Blue Lagoon rakakremi í 4 vikur í framhaldi af baðmeðferð. (Heildarmeðferðartími er 10 vikur).
Hópur 2: Innlögn í Lækningalind Bláa Lónsins í 2 vikur og hefðbundin ljósameðferð í 4 vikur á göngudeild (LSH/Húðlæknastöðin/Bláa Lónið - Lækningalind) í beinu framhaldi. Notkun á Blue Lagoon rakakremi í fjórar vikur í framhaldi af ljósameðferð. (Heildarmeðferðartími er 10 vikur).
Hópur 3: 6 vikna Hefðbundin UVB ljósameðferð á göngudeild (LSH/Húðlæknastöðin/Bláa Lónið) þrisvar sinnum í viku. Notkun á Blue Lagoon rakakremi í fjórar vikur í framhaldi af ljósameðferð. (Heildarmeðferðartími er 10 vikur).
Einstaklingum með psoriasis gefst kostur á að taka þátt í rannsókninni. Þáttakendur þurfa að vera með skellupsoriasis og hafa verið án meðferðar við psoriasis í fjórar vikur fyrir þátttöku. Hóparnir verða bornir saman með tilliti til meðferðarárangurs. Árangur meðferðar verður metinn með endurteknum skoðunum, breytingum í virkni ónæmisfræðikerfisins í blóði og húð ásamt áhrifum meðferðar á lífsgæði þátttakenda. Handahófskennd röðun er í hópana. Allar meðferðir eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Rannsóknin er samþykkt af Vísindasiðanefnd og er Jón Hjaltalín Ólafsson húðlæknir ábyrgðaraðili rannsóknarinnar.
Bláa Lónið leggur ríka áherslu á rannsóknir og haustið 2007 var Vísindanefnd Bláa Lónsins hf stofnuð í þeim tilgangi að styðja við og efla lækningarannsóknir á vegum fyrirtækisins. Nefndin er skipuð húðlæknunum Bárði Sigurgeirssyni og Jóni Hjaltalín Ólafssyni, Ingileif Jónsdóttir sérfræðingi í ónæmisfræði ásamt Steingrími Davíðssyni húðlækni og yfirlækni Bláa Lónsins Lækningalindar og Ásu Brynjólfsdóttur rannsókna-og þróunarstjóra Bláa Lónsins.
Nánari upplýsingar um rannsóknina er að finna í kynningarbréfi vegna rannsóknarinnar. Smelltu hér til að skoða kynningarbréfið sem pdf skjal.

Jenna Huld Eysteinsdóttir, læknir.