Hefðbundinn meðferðardagur
Hér má sjá hvernig hefðbundinn meðferðardagur í Blue Lagoon psoriasis meðferð lítur út.
| Tími | Dagskrá |
| 07:30 - 10:00 | Morgunmatur |
| 10:00 - 11:00 | Böðun í lóninu |
| 10:30 - 12:00 | Ljósameðferð og viðtöl við hjúkrunarfræðinga |
| 12:00 - 13:00 | Hádegisverður |
| 13:00 - 14:00 | Hvíldartími* |
| 14:00 - 15:00 | Böðun í lóninu |
| 15:30 - 18:00 | Frítími** |
| 18:00 - 19:00 | Kvöldverður |
| 20:00 - 22:00 | Böðun í lóninu - frjálst val |
Gestir fara í læknisskoðun annanhvern mánudag.
Hjúkrunarfræðingar eru daglega til viðtals og ráðgjafar.
Mælt er með að gestir baði sig tvisvar sinnum á dag, á morgnana og síðdegis. Gestir sem vilja nýta frítímann síðdegis eiga kost á að baða sig á kvöldin milli kl. 20.00 og 22.00.
*Gestum er ráðlagt að hvíla sig á milli böðunar. Fyrir slökun er tilvalið að nota orkuherbergið þar sem hægt er að slaka á og hlaða líkamann orku. Úr orkuherberginu er stórkostlegt útsýni yfir fallega náttúruna umhverfis lækningalindina.
Í hverju herbergi er sjónvarp. Tölva er til staðar í setustofu.
**Gestir eru hvattir til þess að nýta frítíma til þess að endurnæra líkama og hug. Í lækningalind er góð aðstaða til líkamsræktar og einnig er kjörið fyrir gesti að fara í hressandi göngutúra og njóta ferska loftsins. Auðveldar gönguleiðir eru í nágrenni lækningalindar og hægt er að leigja hjól gegn vægu gjaldi.
Bláa lónið, ein helsta náttúruperla Íslands, er í einungis 10 mínútna göngufjarlægð frá lækningalindinni. Bláa lónið býður upp á úrval spa meðferða og nudd sem fram fara ofan í lóninu. Meðferðargestir fá 20% afslátt af spa meðferðum og nuddi. Í Bláa lóninu er veitingastaðurinn Lava þar sem a la carte matseðill er í boði og Blue Café sem býður upp á léttari veitingar.
Afþreying í boði
Gisting