Heima meðferð
Blue Lagoon húðvörurnar gegna mikilvægu hlutverki í Blue Lagoon psoriasis meðferðinni. Vörurnar innihalda virk efni jarðsjávarins: steinefni; kísil og þörunga og voru upphaflega þróaðar með þarfir psoriasissjúklinga í huga. Auk þess að nota vörurnar í meðferðinni er mælt með notkun þeirra heima fyrir meðan á meðferð stendur og að henni lokinni.
Blue Lagoon psoriasis heimameðferð fyrir líkama og andlit
Vörur
Blue Lagoon silica mud mask
Blue Lagoon mineral bath salts
Blue Lagoon silica softening bath & body oil
Blue Lagoon mineral intensive cream og/eða mineral moisturizing cream
Blue Lagoon icelandic formula quick repair eða icelandic formula vitalizer
Hvernig skal nota vörurnar?
Skref 1: Látið silica mud mask á svæði sem þarfnast meðferðar og nuddið í léttum hreyfingum. Látið liggja og þorna á húðinni í 10-15 mínútur.
Skref 2: Hellið mineral salts og silica softening baðolíu í heitt baðvatn og leggist útí og slakið á í 10-15 mínútúr.
Skref 3: Hreinsið líkamann vandlega með volgu vatni og þurrkið.
Stkref 4: Berið intensive krem á meðferðarsvæðin og moisturizing krem á restina af líkamanum. Fyrir andlit notið icelandic quick repair krem fyrir þurra húð og/eða icelandic formula vitalizer fyir blandaða og venjulega húð.
Endurtakið allt ferlið að minnsta kosti 3svar í viku. Berið kremin á eins oft og þörf krefur.
Blue Lagoon psoriasis heimameðferð fyrir hársvörð.
Vörur
Blue Lagoon silica mud mask
Blue Lagoon mineral intensive cream
Blue Lagoon silica softening bath and body oil
Blue Lagoon silica purifying shampoo
Blue Lagoon algae & mineral shampoo
Blue Lagoon algae & mineral conditioner
Hvernig skal nota vörurnar?
Skref 1: Blandið saman í jöfnum hlutföllum silica mud mask og mineral intensive kremi (1:1). Berið í hársvörðinn með sérstakri áherslu á mjög þurr svæði. Látið liggja í 10-15 mínútur. Hreinsið með volgu vatni. Fyrir mjög þurran hársvörð látið blönduna liggja í hársverðinum yfir nótt.
Skref 2: Nuddið silica purifying shampoo í hársvörðinn og látið liggja í 5 mínútur. Hreinsið með volgu vatni.
Skref 3: Notið algae & mineral hárnæringuna til að næra hárið og hársvörðinn sem og til að hreinsa kísilinn og intensive kremið. Leyfið hárnæringunni að liggja í hárinu í 5 mínútur.
Skref 4: Hreinsið hár og hársvörð vel og vandlega með volgu vatni og þurrkið gætilega með handklæði.
Endurtakið allt ferlið a.m.k. þrisvar í viku eða þangað til einkennin hverfa. Notið síðan silica purifying sjampó einu sinni í viku til að halda einkennunum niðri á móti algae & mineral sjampó.