Einstakur lækningamáttur

Lækningalind

Kynningarmeðferð

Bláa Lónið býður nú upp á kynningu á Blue Lagoon psoriasis meðferðinni fyrir þá sem vilja kynna sér betur þessa einstöku náttúrulegu meðferð.  Kynningarmeðferðin hentar einstaklega vel fyrir þá gesti (erlenda eða íslenska) sem að vilja fá að kynnast því útá hvað Blue Lagoon psoriasis meðferðin gengur út á.  Tilvísun frá húðlækni er ekki nauðsynleg fyrir kynningarmeðferðina. Hámarksdvöl er þrjár nætur. Meðferðin er ekki veitt á sunnudögum.

Kynningarmeðferðin felur í sér:
1. Viðtal við hjúkrunarfræðing sem útskýrir hvernig meðferðin fer fram og kynnir aðstöðuna.
2. Afnot af lóni lækningalindarinnar.
3. Notkun á Blue Lagoon húðvörum sem upphaflega voru þróaðar með þarfir psoriasis sjúklinga í huga.

Verð pr. herbergi Vetur
október - apríl
Vor og haust
maí og september
Sumar
júní - ágúst
Einstaklingsherbergi EUR 99  /  Kr. 13.800 EUR 125  /  Kr. 17.500 EUR 150 /  Kr. 21.000
Tveggja manna herbergi EUR 130  /  Kr. 18.200 EUR 160  /  Kr. 22.400 EUR 220  /  Kr. 29.400


Fyrir kynningarmeðferðina greiða gestir auka EUR 30 á mann pr. dag ef þeir gista í lækningalind.  Annars er verðið EUR 50 á mann pr dag (ein máltíð innifalin). 

Gestum er boðið upp á morgunverð og aðgang í Bláa lónið.

Fyrir nánari upplýsingar og bókanir vinsamlegast hafið samband í s. 420-8806 eða sendið tölvupóst á reservation(hja)bluelagoon.com



Í Bláa lóninu er hægt að dekra virkilega vel við líkama og hug. Í boði eru spa meðferðir og nudd sem fara fram ofan í hlýju lóninu og eru byggðar á virkum efnum Blue Lagoon jarðsjávarins: steinefnum, kísil og þörungum.

Í Bláa lóninu er einnig að finna veitingastaðinn Lava sem býður upp á spennandi a la carte matseðil. Gestir njóta þess að snæða góðan mat í einstöku umhverfi og háir glerveggir veita stórkostlegt útsýni yfir blátt lónið.