Einstakur lækningamáttur

Lækningalind

Sjúkranudd í vatni

Sjúkranudd í Blue Lagoon jarðsjó fer þannig fram að meðferðargesti er haldið á floti svo að líkaminn sé í réttri stöðu og vöðvar og liðir nái góðri slökun. Í meðferðinni finnur gesturinn til þyngdarleysis og hreyfingar verða áreynslulausar. Engar olíur eru notaðar.

Með þessari aðferð nær sjúkranuddarinn að vinna vel á vöðvum, sinum og liðböndum. Gesturinn slakar vel á í jarðsjónum og hitinn hjálpar til við að mýkja vöðvana. Meðferðin byggist mikið á því að nota teygjur sem er einstaklega gott að framkvæma í jarðsjónum þar sem gesturinn nær að slappa vel af. Sjúkranudd í vatni hentar sérstaklega vel fyrir fólk með psoriasis, gigt, langvarandi meiðsl sem og ýmis liðavandamál og taugasjúkdóma.

Hefðbundið sjúkranudd er einnig hægt að fá innandyra.

Sjúkranudd í vatni fer fram í Bláa Lóninu - lækningalind sem er staðsett í 600 m fjarlægð frá Bláa lóninu.

Verð kr 8.900.-

Vinsamlegast bókið nudd í síma 420-8900 eða sendið tölvupóst á medferd@bluelagoon.is