Um lækningalind
Í Bláa Lóninu - lækningalind er veitt náttúruleg meðferð við húðsjúkdómnum psoriasis. Lækningalindin er starfrækt í samvinnu við íslensk heilbrigðisyfirvöld og greiðir Tryggingastofnun Ríkisins hlut innlendra sjúklinga.
Lækningalindin er staðsett á miðri hraunbreiðu á Reykjanesinu þar sem kraftmikið náttúrulegt umhverfi hefur endurnærandi áhrif á líkama og hug. Böðun í Blue Lagoon jarðsjó sem þekktur er fyrir lækningamátt og einstök virk efni: steinefni, kísil og þörunga er mikilvægasti þáttur meðferðarinnar og er lón lækningalindarinnar sérhannað með þarfir meðferðargesta í huga. Rúmgóð innilaug fyllt Blue Lagoon jarðsjó er einnig í lækningalindinni. Lækningalindin er eina húðlækningastöðin í heiminum, sem einbeitir sér eingöngu að rannsóknum og meðferð á psoriasis.
Góð aðstaða er á meðferðarsvæði en þar er m.a. sérútbúið hvíldarherbergi þar sem gestir geta slakað vel á eftir böð og ljósameðferðir, nuddherbergi og rúmgóð herbergi fyrir skoðanir og læknisviðtöl. Gott aðgengi er fyrir fatlaða.
Fimmtán nýtískulega hönnuð, björt og rúmgóð tveggja manna gistihergi eru í boði fyrir gesti lækningalindarinnar. Rúmgóður veitingasalur er í lækningalind ásamt setustofu með sjónvarpi þar sem gestir geta slakað á og notið samverunnar. Gestir hafa einnig aðgang að matstofu, afþreyingaherbergi, vel búnum tækjasal, þar sem stunda má líkamsrækt, og skjólgóðum garði til útiveru og hvíldar.
Árið 2007 hlaut Lækningalind Bláa Lónsins byggingarlistarverðlaun Arkitektafélags Íslands.
Bláa Lónið - Lækningalind
240 Grindavík
Ísland
Sími 420-8900
Fax 420-8834
Netfang: medferd/hjá)bluelagoon.is
Gisting