Einstakur lækningamáttur

Lækningalind

Afþreying

Við hvetjum alla þá gesti sem dvelja í lækningalind að nýta sér fjölbreytta afþreyingarmöguleika á meðan á meðferð stendur. Nágrenni lækningalindarinnar býður upp á marga skemmtilega möguleika og ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 

Gönguferð á ReykjanesiÞað er tilvalið að njóta þess að ganga úti í náttúrunni og anda að sér fersku lofti með því að fara í stuttar gönguleiðir í nágrenni heilsulindarinnar. Á Reykjanesi eru starfræktir gönguhópar sem ganga reglulega saman um svæðið. Einnig er hægt að leigja hjól gegn vægu gjaldi. Orkuherbergið í heilsulind má einnig nýta til þess að slaka á og njóta þess að horfa á stórbrotna náttúruna.


Bláa lóniðBláa lónið
Bláa lónið er staðsett í göngufæri við lækningalindina. Það er tilvalið að fá sér góða göngu eða hjólreiðatúr í Bláa lónið og kynna sér þá þjónustu sem boðið er upp á eins og t.d. spennandi spa meðferðir og nudd sem fara fram ofan í hlýju lóninu. Meðferðargestir fá 20% afslátt af spa meðferðum og nuddi. Í heilsulind er einnig að finna fallegan veitingastað sem býður upp á ljúffengan mat í einstöku umhverfi.


Golf á ReykjanesiGolf
Fjórir golfvellir eru á Reykjanesi en gestir í lækningalind fá golfpassa á sérkjörum.

. Leira (15 mín akstur) 18 holur
. Grindavík (10 mín akstur) 9 holur
. Sandgerði (30 mín akstur) 9 holur
. Vogar (15 mín akstur) 9 holur


Reykjanesviti
Á Reykjanesi er að finna marga áhugaverða staði sem vert er að skoða. Á Reykjanesi eru fallegar gönguleiðir og þar er einnig að finna Reykjanesvita. Mikið fuglalíf er í nágrenni Reykjanesvita.


 
Grindavík
Grindavík er í aðeins 5 mínútna aksturfjarlægð frá lækningalindinni en þar er margt áhugavert að skoða. Þar er t.d. að finna Saltfisksetrið sem er stór og mikil sýning um sögu saltfiskverkunar á Íslandi.


Brúin milli heimsálfaBrúin milli heimsálfa
Á Reykjanesi er að finna brúnna á milli heimsálfa en brúin er staðsett yfir gjá sem myndast hefur vegna hreyfinga Evrópu- og Ameríkuflekanna sem rekast saman og þrýstast í sundur vegna jarðgosa neðan jarðar.


Reykjanesbær
Reykjanesbær er í aðeins 15 mínútna fjarlægð frá heilsulind en þar er að finna verslanir, veitingahús, söfn og aðra áhugaverða staði.


 
Hvalaskoðun
Boðið er upp á hvalaskoðun með bátnum Moby Dick frá apríl og fram í október. Farið er daglega í siglingu á hvalamið í Garðsjó og víðar þar sem hægt er að sjá bæði hvali og höfrunga. Einnig er boðið upp á sjóstangaveiði í skipinu.


Víkingaskipið ÍslendingurVíkingaskipið Íslendingur
Víkingaskipið Íslendingur er nákvæm eftirlíking Gaukstaðaskipsins sem fannst og var grafið upp árið 1882 í Noregi, nánar tiltekið við Gauksstaði í Sandefjørd. Skipið hafði varðveist mjög vel í jörðu en vísindamenn hafa fundið út að það hafi verið smíðað árið 870, fjórum árum áður en Ingólfur Arnarson nam land við Ísland. Íslendingur er hraðskreitt og öruggt úthafsskip. Skipið var byggt árið 1996. Það er 22,5 metrar að lengd og 5,3 metrar á breidd, djúprista er 1.7 metrar og það vegur 80 brúttó tonn. Skipið er byggt úr eik og furu og í það fóru 18 tonn af timbri og 5.000 naglar. Íslendingur er til sýnis við Stekkjarkot í Innri-Njarðvík.


 
Kaffitár - kaffiverksmiðja og kaffihús
Kaffiverksmiðjan Kaffitár hefur flutt starfsemina í nýtt og glæsilegt húsnæði í Innri-Njarðvík. Hægt er að fá leiðsögn um verksmiðjuna og kaffismökkun sem bóka þarf með fyrirvara. Þar er einnig að finna kaffihús sem býður upp á úrval af girnilegu kaffi.


 
Gokart
Í Reykjanesbæ er að finna Gokart braut fyrir þá sem eru fyrir hraða og spennu eða fyrir þá sem vilja einfaldlega fylgjast með. Mælt er með að panta fyrirfram.


 
Duus hús menningarhús
Í Duus húsum er að finna Listasafn og Byggðarsafn Reykjanesbæjar. Ýmsir menningarviðburðir fara fram í Duus húsum eins og t.d. tónleikar og myndlistasýningar. Þar er einnig glæsilegur bátafloti Gríms Karlssonar.


 
GarðskagavitiGarðskagi
Garðskagi er vinsæll ferðamannastaður en þar er að finna Garðskagavita. Mikið fuglalíf er á Garðskaga og nýlega var opnað þar byggðarsafn sem hefur til sýnis ýmsa muni sem tengdust búskaparháttum til sjós og lands, elstu munirnir eru orðnir yfir eitt hundrað ára gamlir. Í Flösinni er hægt að fá gott kaffi og meðlæti og njóta um leið fallegs útsýnis.


Fræðasetrið í Sandgerði
Fræðasetrið í Sandgerði er fyrst og fremst náttúrugripasafn sem hefur að geyma safn ýmissa lífvera og jurta úr lífríki Íslands. Þar er einnig stórt steinasafn með bæði íslenskum og erlendum steinum. Hægt er að skoða lífverur sem eru geymdar í vatnsbúrum og einnig skoða smásædýr undir víðsjá.

Á upplýsingavef Reykjanes má finna fleiri upplýsingar um afþreyingu á svæðinu.