Spurt og svarað
Algengar spurningar - lækningalind
1. Hvað er Blue Lagoon psoriasis meðferð?
Blue Lagoon psoriasismeðferðin er einstök náttúrleg meðferð sem byggir fyrst og fremst á böðun í Blue Lagoon jarðsjó sem þekktur er fyrir lækningamátt og virk innihaldsefni: steinefni, kísil og þörunga. Einstakt náttúrlegt umhverfi, ferskt loft, hreint vatn og Blue Lagoon húðvörur eru einnig mikilvægir þættir meðferðarinnar. Gestir eru hvattir til að slaka vel á og njóta þess að baða sig í hlýjum jarðsjónum og stuðla þannig að auknu jafnvægi líkama og sálar.
2. Hvernig kemst ég í meðferð?
Nauðsynlegt er að fá tilvísun frá lækni til að komast í meðferð hjá Bláa Lóninu. Húðlæknar á höfuðborgarsvæðinu og heimilislæknar utan þess geta vísað í meðferð (Tilvísunarform fyrir lækna). Heilbrigðisyfirvöld greiða meðferðarkostnað fyrir innlenda meðferðargesti og fyrir dvöl á hóteli fyrir þá sem þess þurfa. Taka skal fram á tilvísun ef þörf er á dvöl á hóteli.
3. Hvernig gengur meðferðin fyrir sig?
Gestir hefja meðferðardaginn á hressandi steypibaði þar sem þeir nota Blue Lagoon sturtugel, sem inniheldur steinefni og þörunga. Gestir baða sig síðan í 38-41°C heitum jarðsjó í lóni sem er eingöngu ætlað meðferðargestum. Gestum er ráðlagt að baða sig í 60 mínútur í senn, þá nær húðin að hitna vel, blóðstreymið út í hana eykst og gerir húðina móttækilegri fyrir virkum efnum jarðsjávarins. Steinefnin róa húðina og koma á hana jafnvægi, kísillinn hreinsar og þörungarnir næra húðina og mýkja. Dvalargestir baða sig tvisvar sinnum á dag í eina klukkustund í senn og aðrir gestir einu sinni á dag í eina klukkustund. Auk böðunar í jarðsjónum er boðið upp á UVB ljósaböð í fullkomnum tölvustýrðum ljósaskáp. Meðferð með ljósagreiðu er einnig í boði og hentar vel fyrir þá sem eru með psoriasis í hársverði. Flestir meðferðargestir stunda ljósaböð samhliða böðun í Blue Lagoon jarðsjó. Húðlæknar lækningalindarinnar skoða meðferðargesti með reglulegu millibili og meta árangur meðferðarinnar. Hjúkrunarfræðingar fylgjast með daglegu ferli og eru meðferðargestum til stuðnings og ráðgjafar.
4. Hvaða Blue Lagoon vörum mælið þið helst með fyrir mjög þurra húð?
Blue Lagoon húðvörurnar voru upphaflega þróaðar með þarfir psoriasis sjúklinga í huga og er notkun þeirra ómissandi hluti meðferðarinnar. Þær vörur sem hafa reynst best fyrir mjög þurra húð eru, silica mud mask, mineral bath salts, silica softening bath & body oil, mineral intensive cream og/eða mineral moisturizing cream. Þessar vörur má nota jafnt á líkama sem í andlit. Lærið hvernig á að nota Blue Lagoon vörurnar svo hámarks árangur náist.
5. Hvaða Blue Lagoon vörum mælið þið helst með fyrir þurran hársvörð?
Þær vörur sem hafa reynst mjög vel gegn þurrki í hársverði eru silica mud mask, mineral intensive cream, silica softening bath and body oil, silica purifying shampoo og algae & mineral conditioner. Lærið hvernig á að nota Blue Lagoon vörurnar svo hámarks árangur náist.
6. Hvenær er Bláa Lónið - lækningalind opin

|
Dagur
|
Tími
|
|
Mánudaga
|
10:00 - 20:00
|
|
Þriðjudaga
|
10:00 - 15:00
|
|
Miðvikudaga
|
10:00 - 20:00
|
|
Fimmtudaga
|
10:00 - 15:00
|
|
Föstudaga
|
10:00 - 15:00
|
|
Laugardaga
|
10:00 - 14:00
|
Lækningalindin er lokuð á sunnudögum og á hátíðisdögum.
Fyrir frekari fyrirspurnir, vinsamlegast hafið samband beint við lækningalind í síma 420-8900 eða sendið tölvupóst.