Um Reykjanes

Brúin milli heimsálfa, ólgandi orka, fallegar gönguleiðir, strendur og sögufrægir vitar eru dæmi um það sem Reykjanesið hefur að bjóða. Söfn er endurspegla söguna allt frá Víkingatímum til dagsins í dag eru tilvalinn kostur fyrir þá sem vilja fræðast um einkenni og sögu staðarins.  Keilir er eitt þekktasta auðkenni Reykjanesskagans. Fallegt útsýni er af toppi fjallsins þar sem er útsýnisskífa og gestabók. Þorbjörn sem staðsettur er í næsta nágrenni við Bláa Lónið hentar vel til léttra gönguferða fyrir alla fjölskylduna.

Úrval gisti- og veitingastaða er á Reykjanesi og er heimsókn á svæðið tilvalin dags- og/eða helgarferð. 

www.reykjanes.is

  

Víkingaheimar

Víkingaheimar eru heimili víkingskipsins Íslendings Skipið er smíðað 1996 og er fyrirmynd hins fræga víkingaskip sem fannst við fornleifauppgröft árið 1882 við Gauksstaði í  Sandefjord í Noregi. Þann 17. júní 2000 lagði skipið upp í siglingu til Vesturheims til að  fagna því að 1000 ár voru liðin frá því norrænir menn námu land í Vesturheimi.

Gestir  Víkingaheima hafa einnig tækifæri til að skoða valinn hluta sýningar Smithsonian safnsins um  Víkingatímann. Sýningin varpar ljósi á landnám norrænna manna og landkönnun þeirra.

Lesa meira