Gönguferðir um Reykjanesið

Bláa Lónið ásamt HS Orku og HS Veitum styrkja áhugaverðar gönguferðir um Reykjanesið í sumar. Þetta er fjórða árið í röð sem boðið er  upp á metnaðarfulla göngudagskrá um  Reykjanesið undir leiðsögn Rannveigar  Garðarsdóttur leiðsögumanns í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu.  Verkefnið er unnið í samvinnu við Víkurfréttir, SBK, Björgunarsveitina Suðurnes og 66°N.

Í boði verða alls tíu göngur á tímabilinu  júní - ágúst 2011.  Um er að ræða léttar göngur  í bland við erfiðari og lengri fjallgöngur, eina krefjandi hjólaferð og tvær  “strætógönguferðir”. Í leiðalýsingu fyrir  gönguferðirnar er tilgreint hvað gangan  taki langan tíma, erfiðleikastig, hvort  göngu ljúki á sama stað og hún hófst á  og hvort farið sé á upphafsstað með rútu  eða strætó.  Áætlaður tími gerir ekki ráð  fyrir ferðatíma til og frá göngustað sem  getur verið breytilegur.

Í hverri göngu er tekinn nestispása þar sem sagt er frá  ýmsum fróðleik um nánasta umhverfi.

Gönguferðirnar hefjast kl. 19:00 við SBK Grófinni 2-4, Reykjanesbæ, og enda einnig þar. Tvær göngur hefjast fyrr, sjá rauðlitað í dagskrá. Starfsfólk Bláa Lónsins fær frían aðgang í rútu sem fer frá SBK og ekur með göngugarpana á áfangastað. Fólk getur einnig  komið sér sjálft til og frá göngustað. Göngufólk er á eigin ábyrgð í gönguferðunum. Hafa meðferðis:

  • góða gönguskó / göngustafi
  • léttan bakpoka
  • viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri
  • létt nesti (samloku, ávexti, kex)
  • drykkjarföng
  • baðföt og handklæði í síðustu gönguna

8. júní - Auðlindagarðurinn

Ekið verður að Bláa Lóninu þar sem byrjað  verður með kynningu á dagskrá gönguferða  sumarsins. Gengið verður frá Bláa Lóninu  að Þorbirni og þaðan  eftir stikuðum  Reykjaveginum yfir Blettahraun að Eldvörpum  þar sem göngumönnum verður boðið upp á  hressingu. Gangan tekur 2 – 3 klst.

15. júní - Strætó gönguferð

Gengið verður frá SBK í gegnum gamla bæinn  í Keflavík. Sagt verður frá gömlum þjóðleiðum  sem lágu til Keflavíkur. Þræddur verður gamli  Melabergsvegurinn sem lá frá Keflavík að  Melabergi. Gengið verður upp á Miðnesheiðina.  Þaðan verður farið með strætó og ekið upp  í Ásbrú, þar sem genginn verður hringur um  svæðið og sagt frá byggðinni á ”Vellinum”. Gangan tekur 2 – 3 klst.

22. júní - Eldfjallahringur

Gengið eftir gamalli hrauntröð uppundir  mikinn hamravegg  sem nefnist Gálgaklettar  og þaðan yfir Sundhnjúk stærsta gíginn  í samfelldri óraskaðri gígröð sem nefnist  Sundhnúkagígaröðin.  Gengið verður áfram á Svartsengisfell 188 m.  Ofan á fellinu er stór og myndarlegur gígur sem  vert er að skoða  auk útsýnisins yfir Illahraun,  Bláa lónið og Eldvörpin.  Gangan tekur 3 - 4 klst.

29. júní - Jarðskjálftaslóðir

Gengið verður frá Seltúni að Arnarvatni. Þaðan  verður gengið með rótum Hatts og Hettu þar  sem jarðskálftavirkni hefur verið á árinu. Gengið  verður að Bæjarfelli þar sem Krísuvíkurkirkja  stóð. Guðmundur Ómar yfirjarðfræðingur HS  Orku hf verður með leiðsögn ásamt Rannveigu. ATHUGIÐ BREYTTA TÍMASETNINGU Lagt verður af stað kl 17:00  Gangan tekur 4 - 5 klst.

6. júlí - Njarðvík - Grímshóll - Hólmabúðir

Gengið frá Innri Njarðvík með ströndinni upp  á Grímshól, hæsta punkt á Stapanum. Þaðan  að Hólmabúðum undir Stapanum þar sem mikil  byggð var á 19. öld. Þar byrjaði m.a. Haraldur  Böðvarsson sína útgerð. Skoðaðar verða rústir  bæja, verbúða og salthúsa. Gengið þaðan inn í  Voga. Gangan tekur 2 - 3 klst.

13. júlí - Sandgerði og Ósabotnar, hjólaferð

Hjólað frá SBK yfir Miðnesheiði að Sandgerði.  Hjólað áfram Stafnesveg að Hvalsnesi og  Stafnesi. Ósabotnavegur til baka til Keflavíkur. Alls u.þ.b. 42 km. Ferðin tekur 3 - 4 klst.

20. júlí - Strætó gönguferð

Ekið með strætó út í Innri Njarðvík. Þrædd  verður gamla Stapagatan sem liðast í gegnum  Innri Njarðvík og er mjög ógreinileg á köflum.  Gengið að Fitjum eða lengra, ræðst af veðri.  Gangan tekur 2 - 3 klst.

27. júlí - Keilir

Einkennisfjall Suðurnesja, 378 m hár gígtappi  sem trónir yfir umhverfi sínu.  Gengið verður frá Höskuldarvöllum yfir  mismunandi gróft hraun að Keili. Þaðan upp  fjallið, fyrst í lausamöl eftir þægilegu einstigi  langleiðina upp en síðustu metrana er harðara  undir fæti. Verðlaunin eru dásamlegt útsýni yfir  Reykjanesskagann.  Gönguferðin tekur 3 - 4 klst.

10. ágúst. Garðskagi - Sandgerði

Létt fjöruganga. Sagt verður frá viðburðarríkum  atburðum sem tengjast sögu Íslendinga og  gerðust á þessum slóðum. Einnig verður sagt  frá landnámsmönnum sem búsettir voru á  þessu svæði. Gangan tekur 2 - 3 klst.

17. ágúst. Þorbjörn - Bláa Lónið

Gengið verður yfir Þorbjörn í gegnum  tilkomumiklar gjár á toppi hans.  Komið  verður niður í skógræktinni á Baðsvöllum og  þaðan verður gengið að Bláa Lóninu þar sem  göngufólki verður boðið upp á hressingu og bað í Bláa Lóninu. ATHUGIÐ BREYTTA TÍMASETNINGU. Lagt verður af stað kl 17:00 Gangan tekur 3 - 4 klst. og síðan tekur við  slökun í Bláa Lóninu. Áætluð heimkoma 23:00.

Rannveig Garðarsdóttir leiðsögumaður

Rannveig þekkist einnig undir  nafninu Nanný. Hún hefur skipu- lagt og staðið fyrir gönguferðum  um Reykjanesskagann undan- farin 10 ár, ýmist sjálf eða í samvinnu við fyrirtæki.

Nanný býr  yfir mikilli reynslu og kunnáttu á  staðháttum á svæðinu.

Stutt er í  brosið og það er óhætt að segja  að engum leiðist í gönguferð  með Nanný.