Grindavíkurbær - Heimabær Bláa Lónsins

Bláa lónið er staðsett í Grindavík en miðbæjarkjarninn er í aðeins þriggja mínútna akstursfjarlægð. Ferðaþjónustuaðilar í Grindavík starfa sameiginlega undir heitinu Grindavik-Experience en þeir bjóða upp á ferðaþjónustu á heimsmælikvarða. Allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir ferðafólk er að finna á www.visitgrindavik.is

Eftir að hafa notið alls þess sem Bláa lónið býður upp á er tilvalið að skella sér til  Grindavíkur en saga bæjarins er um margt merkileg. Þar er fjölbreytt afþreying eins og  Kvikuna – Auðlinda- og menningarhús, fjórhjólaferðir, eldfjallaferðir, hestaferðir, sundlaug, listastofur, sýningar, sportsiglingar, skoðunarferðir t.d. um fiskvinnslufyrirtæki, í rútu um svæðið og margt fleira.

Í Grindavík leynast ævintýrin. Hvað er áhugavert fyrir ferðafólk að skoða í Grindavík? Hér má sjá það helsta. Þar má nefna höfnina, hringiðu samfélagsins, stíga, vita, Gunnuhver, Selatanga, Brimketil, gönguleiðir, Eldvörp og hin stórmerkilega Hópsneshring og margt fleira.

Í Grindavík eru skemmtilegir matsölustaðir og kaffihús og þá eru ýmsir gistimöguleikar fyrir hendi. Sumarið 2009 var opnað eitt glæsilegasta tjaldsvæði á Íslandi.

Í Grindavíkurbæ er fjölbreytt þjónusta sem ferðamenn þurfa stundum á að halda eins og bankaþjónusta, heilsugæsla, lögregla, bílaþjónusta, matvörubúð og ýmislegt fleira. Þá er hér glæsilegur 13 holu golfvöllur sem unnið er að stækka í 18.

Grindavík er fjölskylduvænn bær og einn öflugasti útgerðarbær landsins með kraftmiklum og vel reknum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum. Skólastarf í Grindavík er til mikillar fyrirmyndar. Grindavík státar af kraftmiklu íþróttastarfi allt frá yngri iðkendum og upp í þá eldri en knattspyrnu- og körfuknatleiksfólk ásamt júdó hefur borið hróður bæjarfélagsins víða.

Mannlíf í bænum er fjölskrúðugt og öflugt, bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti er okkar stolt, hér líður okkur vel.

Grindavik on a mapGrindavíkurbær
Sími 420 1100. Fax 420 1111.
www.grindavik.is
grindavik@grindavik.is
www.visitgrindavik.is
Íbúafjöldi: 2850
Upplýsingamiðstöð ferðamanna: Kvikan og tjaldsvæðið.
Bæjarstjóri: Róbert Ragnarsson, robert@grindavik.is