Víkingaheimar

Víkingaheimar eru heimili víkingskipsins Íslendings Skipið er smíðað 1996 og er fyrirmynd  þess hið fræga víkingaskip sem fannst við fornleifauppgröft árið 1882 við Gauksstaði í  Sandefjord í Noregi. Þann 17. júní 2000 lagði skipið upp í siglingu til Vesturheims til að  fagna því að 1000 ár voru liðin frá því norrænir menn námu land í Vesturheimi.

Gestir  Víkingaheima hafa einnig tækifæri til að skoða valinn hluta sýningar Smithsonian safnsins um  Víkingatímann. Sýningin varpar ljósi á landnám norrænna manna og landkönnun þeirra.

Gunnar Marel Eggertsson hóf smíði víkingaskipsins í október 1994 og lauk hálfu öðru ári síðar. Skipið var sjósett í mars 1996. Skipið smíðaði Gunnar Marel að mestu leyti einn, en naut leiðsagnar víða frá.

Fyrst eftir að Íslendingur var sjósettur var skipið notað til að fræða íslensk skólabörn um víkingatímann. Ætlun Gunnars Marels Eggertssonar var þó sú að sigla skipinu til Bandaríkjanna árið 2000 til minningar um sjóferð Leifs Eiríkssonar teinöld fyrr, en það ár var efnt til margvíslegra atburða vestanhafs til að minnast þess að þúsund ár voru liðin frá landnámi norræna manna. Allt þetta gekk eftir.

Sigling Íslendings vestur um haf og koma skipsins til hafnar í Nýju Jórvík vakti gríðarmikla athygli. Sjónvarpsstöðvar kepptust við að sýna myndskeið frá viðkomustöðum skipsins og var mál manna þetta hefði verið góð landkynning.

www.vikingaheimar.is