Bláa Lónið hf var stofnað árið 1992 og er meginmarkmið félagsins að vera í forystu um uppbyggingu heilsu- og ferðaþjónustu á Íslandi. Öll starfsemi félagsins byggir á einstakleika og eiginleikum Blue Lagoon jarðsjávarins sem inniheldur steinefni, kísil og þörunga eða nálægð við jarðsjóinn og einstakt umhverfi hans.
Starfsemi fyrirtækisins er fjölbreytt. Blue Lagoon Geothermal Spa er án efa þekktasti hluti hennar en árlega heimsækja 400.000 gestir þessa vinsælu heilsulind. Í Lækningalind sem staðsett er aðeins steinsnar frá spa staðnum er veitt Blue Lagoon meðferð við psoriasis í glæsilegri aðstöðu.
Blue Lagoon húðvörurnar byggja á náttúrulegum virkum efnum Bláa Lónsins, kísil og þörungum. Vörurnar eru fáanlegar í verslunum fyrirtækisins sem staðsettar eru í Bláa Lóninu; að Laugavegi 15 og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Blue Lagoon spa meðferðir eru í boðið í fallegu Day Spa Blue Lagoon sem staðsett er í Glæsibæ í Reykjavík þar sem Hreyfing er einnig til húsa en fyrirtækið á einnig og rekur Hreyfingu.
Veitinga- og ráðstefnuþjónusta er vaxandi þáttur og býður Bláa Lónið eina glæsilegustu fundarsali landsins. Spennandi veitingar eru í boði á Lava sem hentar vel fyrir bæði einstaklinga og hópa sem vilja njóta veitinga í einstöku umhverfi.
Hjá Bláa Lóninu starfa nú hátt í 200 starfsmenn við fjölbreytt störf innan heilsutengdrar ferðaþjónustu.
