Um fyrirtækið

Atvinna

Bláa Lónið er heilsulind á heimsmælikvarða og einn vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna sem sækja Ísland heim. Bláa Lónið er í örum vexti og hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir starfsemi sína og nýsköpun.

• Við samanstöndum af hópi orkumikilla og jákvæðra einstaklinga og myndum samstíga heild sem stefnir saman að því að vera í fararbroddi á alþjóðavísu.

• Við veitum afburða þjónustu og erum fyllilega samkeppnishæf á vinnumarkaðnum.

• Við bjóðum upp á metnaðarfullt og markvisst þjálfunarferli og nám, þar sem áhersla er á að starfsmenn efli persónulega þekkingu sína og auka um leið möguleika sína til starfsþróunar innan fyrirtækisins.

• Við starfrækjum öflugan skóla: Bláa Lóns skólann, þar sem allt nám miðast við að efla starfsfólk okkar og virkja einstaklinga sem virkja sína innri orku fyrirtækinu og sjálfu sér til heilla!

• Bláa Lónið býður starfsmönnum jafnframt upp á öflugt eininganám, sem getur verið metið til framhaldsnáms. Tilgangur námsins er að stuðli að jákvæðu viðhorfi starfsmanna og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni í vinnu.

• Við eflum starfsmenn okkar til samræmis við vöxt Bláa Lónsins hverju sinni

Fréttabréf
Bláa lónsins