Bláfáninn
Bláa Lónið hefur flaggað Bláfánanum árlega frá árinu 2003. Fyrstu árin blakti fáninn við húni á sumrin en á síðasta ári sótti Bláa Lónið um að fá að flagga fánanum allt árið um kring og gekk það eftir. 9. júní 2010 var fáninn dreginn að húni við hátíðlega athöfn í Bláa Lóninu og mun verða flaggað allt árið hér eftir.
Bláfáninn ,,er alþjóðlegt umhverfismerki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna og baðstranda. Bláfánann hljóta þeir einir sem leggja sig fram um að bæta gæði og þjónustu stranda og smábátahafna og stuðla að verndun umhverfis. Bláfáninn er tákn um að umhverfismál, öryggismál og umhverfisfræðslumál eru í hávegum höfð hjá handhöfum fánans" (af heimasíðu Landverndar).
Um 30 lönd eiga aðild að Bláfánanum. Samtökin Landvernd annast úthlutun og eftirlit með Bláfánanum á Íslandi og skipuleggja alla framkvæmd þar að lútandi í samstarfi við Fiskifélag Íslands, Félag Umhverfis- og Heilbrigðisfulltrúa, Hafnasambandið, Umhverfisstofnun og Samtök ferðaþjónustunar.
Bláfánaströnd
Baðströndum er veittur Bláfáninn ef þar hefur verið kappkostað að vernda umhverfið, bæta öryggismál og aðstöðu í höfninni og veita fræðslu um náttúruna og umhverfisvernd. Þessi viðleitni á að treysta verndun umhverfis strandarinnar og bæta gæði þess sem ströndin og umhverfi hennar hefur upp á að bjóða, og vera öllum þeim sem nota eða heimsækja baðströndina til hagsbóta. Sem gestur eða notandi Bláfánastrandar getur þú verið viss um að ströndin sé:
- Snyrtileg og vel sé fylgst með ástandi hennar.
- Vatnið og sjórinn sé hreinn og að á staðnum séu upplýsingar um vatnsgæðin.
- Til staðar sé haldgóður búnaður til að taka á móti flokkuðu sorpi, salernin snyrtileg og viðhald bygginga sé í góðu lagi.
- Til staðar sé búnaður fyrir skyndihjálp, björgunarbúnaður og sími til að kalla eftir aðstoð.
- Að boðið sé upp á fræðslu um umhverfi- og náttúru.
- Að gestum sé bent á hvar eru viðkvæm og vernduð svæði.
Þessar kröfur, ásamt fleirum sem gerðar eru, eiga að stuðla að því að í senn sé bæði ánægjulegt og öruggt að fara um og njóta strandarinnar.
Öryggi og þjónusta
Bláa Lónið er með virka áætlun um viðbrögð við slysum. Öllum starfsmönnum er kynnt þessi áætlun og hljóta þeir þjálfun um rétt viðbrögð. Verðir fylgjast ætíð með baðsvæðinu og eru björgunartæki ávallt til taks. Bláa Lónið og önnur félög og fyrirtæki í nágrenninu hafa einnig bundið höndum saman og komið upp áætlun sem ætluð er til að bregðast við hugsanlegum mengunarslysum.
Vatnsgæði
Fylgst er með gæðum baðvatnsins í Bláa Lóninu og reglulega eru tekin sýni sem send eru til greiningar á óháða rannsóknarstofu.
| Dags. | Faecal Coliform | Total Coliform | Faecal Streptoc. |
|---|---|---|---|
| 12. janúar 2011 | <1 | <1 | 1 |
| 17. nóvember 2011 | 7 | 33 | 3 |
| 2. nóvember 2011 | 9 | 9 | 3 |
| 21. október 2011 | 5 | 5 | <1 |
| 6. október 2011 | 2 | 23 | <1 |
| 21. september 2011 | 17 | 33 | <1 |
| 7. september 2011 | 1 | 6 | <1 |
| 25. ágúst 2011 | 3 | 9 | <1 |
| 9. ágúst 2011 | 2 | 3 | <1 |
| 25. júlí 2011 | 2 | 23 | <1 |
| 15. júlí 2011 | 1 | 5 | <1 |
| 1. júlí 2011 | 2 | 11 | 1 |
| 15. júní 2011 | 2 | 8 | <1 |
| 3. júní 2011 | 6 | 6 | <1 |
| 18. maí 2011 | <1 | <1 | <1 |
| 4. maí 2011 | <1 | <1 | <1 |
| 20. apríl 2011 | 1 | 4 | 1 |
| 8. apríl 2011 | 6 | 8 | 1 |
| 25. mars 2011 | <1 | <1 | <1 |
| 10. mars 2011 | 2 | 8 | <1 |
| 11. febrúar 2011 | 2 | 2 | <1 |
| 14. janúar 2011 | 4 | 33 | 1 |
| 30. desember 2010 | 16 | 6 | 3 |
| 17. desember 2010 | 3 | 2 | 3 |
| 2. desember 2010 | 33 | 33 | <1 |
| 19. nóvember 2010 | 17 | 11 | 4 |
| 5. nóvember 2010 | 2 | 2 | <1 |
| 22. október 2010 | 13 | 16 | 4 |
| 6. október 2010 | 3 | 6 | 3 |
| 23. september 2010 | <1 | 23 | <1 |
| 10. september 2010 | 13 | 76 | 2 |
| 25. ágúst 2010 | 1 | 6 | 1 |
| 16. ágúst 2010 | 6 | 33 | 1 |
| 29. júlí 2010 | 20 | 25 | 1 |
Hvað þýða niðurstöðurnar?
| Faecal Coliform | Total Coliform | Faecal Streptococci |
|---|---|---|
| Undir 100: Hreint baðvatn. | Undir 500: Hreint baðvatn. | Undir 100: Hreint baðvatn. |
| 100-2.000: Er leyfilegt nokkrum sinnum yfir tímabilið. | 500-10.000: Er leyfilegt nokkrum sinnum yfir tímabilið. | Undir 100: Er leyfilegt nokkrum sinnum yfir tímabilið. |
| Yfir 2.000: Bendir til mögulegrar mengunar. Bláfánann þarf að taka niður. | Yfir 10.000: Bendir til mögulegrar mengunar. Bláfánann þarf að taka niður. | Yfir 100: Bendir til mögulegrar mengunar. Bláfánann þarf að taka niður. |
Athugasemdum og kvörtunum sem tengjast Bláfánanum skal beint til Landverndar, www.landvernd.is.