Bláa Lónið gerist bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar Íslands
Bláa Lónið og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa gert með sér samstarfssamning og er Bláa Lónið fyrsta fyrirtækið til að gerast bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar.
Hönnun skipar mikilvægan sess í starfsemi Bláa Lónsins og hefur hönnun fyrirtækisins hlotið viðurkenningar bæði innanlands og erlendis. Með samstarfinu við Hönnunarmiðstöð vill Bláa Lónið stuðla að því að efla íslenska hönnun enn frekar.
„Hönnun er einn af grunnþáttum uppbyggingar Bláa Lónsins og mjög mikilvægur þáttur í viðskiptalíkani fyrirtækisins. Áhersla á hönnun hefur haft jákvæð áhrif á árangur fyrirtækisins bæði hvað varðar upplifun viðskiptavina Bláa Lónsins og við uppbyggingu vörumerkisins Blue Lagoon Iceland. Hönnun er í raun auðlind sem snertir flesta þætti samfélagsins. Það er því sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur hjá Bláa Lóninu gerast bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar Íslands“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf.
Hönnunarmiðstöð vinnur markvisst að því að auka skilning manna á þeim tækifærum sem felast í hönnun og arkitektúr segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands“ „Við vinnum að því að bæta starfsumhverfi hönnuða og hönnunarfyrirtækja og styðjum ört vaxandi grasrót á okkar sviði. Það er mjög mikilvægt fyrir Hönnunarmiðstöð sem er í eigu íslenskra hönnuða að öflug íslensk fyrirtæki standi á bak við Hönnunarmiðstöð og sýni íslenskri hönnun stuðning sinn í verki eins og Bláa Lónið gerir nú. Samstarfssamningurinn er táknrænn fyrir mikilvægi hönnunar fyrir atvinnulífið og það er sérstaklega ánægjulegt að Bláa Lónið sem hefur unnið mikið frumkvöðlastarf með innleiðingu hönnunar í uppbyggingu og starfsemi er nú fyrsta fyrirtækið til að gerast bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar Íslands,“ segir Halla.
Nánari upplýsingar veita:
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands sími 699-3600 & Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa Lónsins hf. sími 660-8805

Frá vinstri: Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa Lónsins hf., Sigríður Sigþórsdóttir aðal arkitekt Bláa Lónsins og Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Nýr Blue Lagoon þörungamaski

Nærir, lyftir og veitir húðinni aukinn ljóma.
Einstaklega áhrifaríkur náttúrulegur maski sem byggir á Blue Lagoon þörungum, og náttúrulegum efnum úr jurta- og plönturíkinu og er án parabena.
Nýr Blue Lagoon þörungamaski „Algae Mask“ er kominn á markað. Maskinn nærir, lyftir og veitir húðinni aukinn ljóma. Hann hentar öllum húðgerðum og vinnur á áhrifaríkan hátt gegn streitu og öldrunareinkennum.
Inniheldur eingöngu náttúruleg virk Blue Lagoon efni og sérvalin virk efni úr plöntu- og jurtaríkinu.
Maskinn byggir á háþróaðri formúlu með virkum Blue Lagoon efnum: þörungum, steinefnum um og kísil. Rannsóknir sýna að þörungarnir draga úr öldrun húðarinnar með því að efla kollagenbúskap hennar og styrkja efsta varnarlag húðarinnar. Bláa Lónið leggur áherslu á að nota náttúruleg efni úr plöntu- og jurtaríkinu. Maskinn inniheldur nærandi lífræna kvöldvorrósarolíu og jojoba olíur og blöndu af plöntuolíum auk náttúrlegra rakagefandi efna og andoxunarefna sem verja húðina. Náttúruleg hveiti prótein lyfta húðinni og draga úr sýnileika á hrukkum á skjótvirkan hátt. Maskinn inniheldur engin erfðabreytt efni og er án parabena.
Tuttugu íslenskar konur tóku þátt í neytendaprófi og voru niðurstöður þeirra afar jákvæðar eins og taflan hér að neðan sýnir.

Maskinn er spennandi nýjung í Blue Lagoon húðvörulínunni og hefur vörunnar verið beðið með eftirvæntingu. Jákvæð áhrif Bláa Lónsins á húðina hafa verið þekkt allt frá því að fólk hóf að baða í Bláa Lóninu. Áhrif kísilsins á húðina eru þekkt og þá töluðu þeir sem fyrstir voru til að baða í Lóninu eftir myndun þess einnig um það að áhrifin væru enn betri ef sjá mátti grænan lit í kíslinum. Rannsóknir leiddu síðar í ljós að þarna voru á ferðinni sjaldgæfar þörungategundir sem hafa virkni gegn öldrun húðarinnar. Rannsóknir leiddu til þróunar á þörungamaska sem eingöngu var fáanlegur fyrir spa gesti Bláa Lónsins og er hann afhentur frosinn í Lóninu sjálfu. Maskinn sló í gegn á meðal viðskiptavina og því var ákveðið að þróa þörungamaska til nota heima fyrir.
Maskinn kemur í fallegri 50 ml krukku. Sérstakur spaði fylgir með til að skammta maskann. Maskinn verður einnig fáanlegur í 10ml bréfum sem handhægt er að taka með sér á ferðalögum.
Umhverfisvænar framleiðsluaðferðir
Blue Lagoon þörungarnir sem þörungamaskinn byggir á eru ræktaðir í Rannsókna- og þróunarsetri Bláa Lónsins í lokuðu vistkerfi. Allar framleiðsluaðferðir eru grænar og umhverfivænar. Þörungarnir eru m.a. ræktaðir með koldíoxíð frá orkuveri HS Orku hf í Svartsengi og með því móti dregur Bláa Lónið úr losun á koltvísýringi út í andrúmsloftið.
Blue Lagoon húðvörurnar byggja á jarðsjó Bláa Lónsins og náttúrulegum virkum efnum hans; kísil, steinefnum og þörungum. Fyrstu vörurnar komu á markað árið 1995 og er húðvörulínan afrakstur stöðugs rannsókna- og þróunarstarfs. Vörulínan telur 28 vörutegundir fyrir andlit og líkama auk sérhæfðra vara fyrir spa og snyrtistofur.
Blue Lagoon húðvörurnar eru fáanlegar í verslunum Bláa Lónsins í Blue Lagoon Spa, Flugstöðinni, Blue Lagoon Spa í Álfheimum, Reykjavík og í verslun Bláa Lónsins að Laugavegi 15. Öll vörulínan er einnig fáanleg í netverslun Bláa Lónsins á www.bluelagoon.is og www.bluelagoon.com. Vörurnar eru einnig fáanlegar í verslunum Hagkaupa í Kringlunni og í Smáralind . Þær eru einnig seldar völdum apótekum Lyfju og Lyf og Heilsu. Valdar vörur eru fáanlegar í komufríhöfninni og einnig um borð í vélum Icelandair og Iceland Express.
Nánari upplýsingar veitir: Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa Lónsins hf,
sími 660-8805 magnea@bluelagoon.is
Bláa Lónið veitir öllum íþróttafélögunum á Suðurnesjum styrki
.jpg)
Bláa Lónið hefur veitt öllum íþróttafélögunum á Suðurnesjum styrki. Fulltrúar félaganna veittu styrkjunum móttöku þriðjudaginn 8. maí, í Bláa Lóninu.
Eftirfarandi greinar hlutu styrki: knattspyrna, körfuknattleikur, sund, fimleikar, badminton, júdó, skotfimi, lyftingar, taekwondo, hnefaleikar, þríþraut, akstursíþróttir, vélhjólaíþróttir, hestamennska og handbolti auk NES íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum.
Heildarvirði styrkjanna nú er rúmlega 6 milljónir króna en þeir eru í formi aðgangskorta í Bláa Lónið.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sagði við þetta tækifæri að það væri bæði ánægjulegt og mikilvægt fyrir Bláa Lónið að koma með öflugum hætti að íþrótta- og æskulýðsstarfi á Suðurnesjum.
„Við hjá Bláa Lóninu gerum okkur vel grein fyrir því mikilvæga og óeigingjarna starfi sem er unnið innan íþróttahreyfingarinnar. Alls veitum við um 30 styrki í dag og er það táknrænt fyrir fjölbreytt og öflugt íþróttastarf hér á Suðurnesjum."
„Suðurnesjafólk hefur einnig náð einstökum árangri og það er sérstaklega ánægjulegt að Grindvíkingar hafi orðið Íslands- og deildarmeistarar karla í körfuknattleik og Njarðvíkurstúlkur Íslands og bikarmeistarar í sömu grein. Auk þess sem Keflvíkingar urðu bikarmeistarar karla í körfuknattleik og keflavíkurkonur deildarmeistarar. Frábær árangur Heiðarskóla og Holtaskóla í Skólahreysti er einnig eftirtektarverður. Við óskum þessum aðilum og öllum þeim sem koma að íþrótta- og æskulýðsstarfi á Suðurnesjum til hamingju með frábæran árangur og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ sagði Grimur við þetta tækifæri.