Um fyrirtækið

Samfélagsverkefni

Efling íþrótta- og æskulýðsstarfs, menningarlæsis, bókmennta og útivistar

Bláa Lónið er traustur bakhjarl íþrótta- og æskulýðsstarfs á Suðurnesjum. Á vordögum 2011 voru gerðir samstarfssamningar við um 30 íþróttagreinar og leggur félagið metnað sinn í að styðja við allar íþróttagreinar á Suðurnesjum. Samstarfið gerir starfsfólki Bláa Lónsins einnig kleift að sækja íþróttaviðburði stærri greina þeim að kostnaðarlausu. Samstarfssamningar voru einnig gerðir við alla gólfklúbbana á svæðinu. Hluti samstarfsins er að veita starfsfólki Bláa Lónsins tækifæri til að stunda þessa vinsælu íþrótt þeim að kostnaðarlausu. Fyrirtækið styður einnig við Bláa Lóns þrautina á fjallahjóli. 


Stofnun Vigdísar FinnbogadótturStofnun Vigdísar Finnbogadóttir – Efling menningarlæsis

Samstarfssamningur við stofnun Vigdísar Finnbogadóttur var undirritaður þann 22. desember 2010. Stuðningur Bláa Lónsins er til verkefna er hafa það að markmiði að efla menningarlæsi.

Markmið samningsins er að stuðla að vexti og viðgangi stofunnarinnar og styðja við áform hennar um að koma á fót alþjóðlegri tungumálamiðstöð innan vébanda hennar.


Sögueyjan ÍslandSögueyjan Ísland – stuðningur við heiðurþátttöku Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt

Sögueyjan Ísland og Bláa Lónið hafa gert með sér samkomulag um að Bláa Lónið verði einn af styrktaraðilum heiðursþátttöku Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt.

Bláa Lónið mun verða hluti af kynningarmynd í sýningarskála Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt í október. Íslenskar bókmenntir og íslensk náttúra verða í aðalhlutverki í kynningarmyndinni. Lesa meira


Orkugöngur Blue Lagoon og HS Orku og Veitna um Reykjanesið

Bláa Lónið ásamt HS Orku og HS Veitum mun kosta skipulagðar gönguferðir um Reykjanesið.

Göngurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu og áhersla lögð á að þátttakendur upplifi útvist á Reykjanesi.

Sérstök áhersla verður lögð á fræðslu um jarðauðlindagarðinn á Reykjanesi.


Blái herinnBlái herinn

Bláa Lónið hefur um árabil veitt verkefninu Blái herinn stuðning.

Tilgangur verkefnisins er m.a. hreinsun strandlengjunnar á Reykjanesi og hefur Blái herinn unnið ómentanlegt starf fyrir svæðið. 


Fræðslufundur um samfélagsmiðla og ferðaþjónustuEfling ferðaþjónustu á Reykjanesi

Gott samstarf ríkir milli Bláa Lónsins og ferðaþjónustuaðila á Reykjanesi. Áhersla er lögð á að efla það enn frekar.

Félagar í Grindavík Experience sóttu fræðslufund í boði Bláa Lónsins um markaðssetningu á netinu þann 28. mars sl. Rósa Stefánsdóttir, sérfræðingur Bláa Lónsins í markaðssetningu á netinu, flutti fróðlegt erindi fyrir hópinn um möguleika fyrirtækja í ferðaþjónustu til markaðssetningar á netinu.