Uppruni
Blue Lagoon jarðsjórinn finnst á allt að 2000 metra dýpi. Hárfínt samspil náttúru og nútímatækni veitir okkur aðgang að þessum einstaka vökva. Hitaveita Suðurnesja borar fyrir jarðsjónum sem er nýttur til að hita ferksvatn sem notað er til húshitunar og til að framleiða rafmagn.
Jarðsjórinn er leiddur í lögn að Bláa lóninu og að lóni heilsulindar þar sem gestir njóta einstakra eiginleika hans. Bláa lónið inniheldur 6 milljónir lítra af Blue Lagoon jarðsjó sem endurnýjar sig á 40 klukkustunda fresti.
Einstakt vistkerfi Blue Lagoon jarðsjávarins hreinsar sig sjálft og reglulegar sýnatökur leiða Í ljós að algengar bakteríur þrífast ekki í lóninu. Hreinsiefni eins og klór eru því ekki nauðsynleg til að halda lóninu hreinu.
Einstök virk hráefni lónsins: steinefni, kísill og þörungur eru þekkt fyrir góð áhrif á psoriasis og ýmsa húðsjúkdóma. Einstakan bláan lit jarðsjávarins má rekja til þessara virku hráefna.
Blue Lagoon jarðsjór - styrkur megin innihaldsefna.
mg/kg af vökva
Silica (SiO2) 251
Sodium (Na) 7,43
Potassium (K) 1,177
Calcium (Ca) 1,74
Magnesium (Mg) 0,60
Carbon dioxide (CO2) 11,4
Sulphate (SO4) 31,8
Chlorine (Cl) 15,40
Fluorine (F) 0,18
Total soluble Chemicals 25,800
Önnur efni finnast í litlu mæli.