Um fyrirtækið

Vistkerfi

Vistkerfi Bláa lónsins er dæmi um einstakt samspil náttúru og tækni.

Háhitasvæðin á Íslandi liggja í gliðnunarbelti Ameríku og Evrópu-Asíu flekanna og tengjast virku eldfjallabelti landsins. Hér á Reykjanesi kemst kaldur vökvi, sem er blanda af sjó og grunnvatni í snertingu við heitt innskotsberg á miklu dýpi, vökvinn snögghitnar og stígur upp í átt að yfirborði jarðar. Á u.þ.b. kílómetra dýpi er hitastig vökvans um eða yfir 200°C.

Úrkoma sem fellur á Reykjanesskagann seytlar í gegnum gljúpt hraunið og myndar í því ferskvatnslag með afrennsli til sjávar. Við ströndina mætir þetta grunnvatn söltum sjónum.

Hitaveita Suðurnesja hf borar eftir jarðhitavökva hér á svæðinu. Borholurnar eru allt að 2000 metra djúpar og vökvinn allt að 243°C. Varmi hins endurnýjanlega jarðhitavökva er nýttur á samofinn hátt til þess að framleiða hitaveituvatn af drykkjarvatnsgæðum og rafmagn. Þetta óvenjulega og vistvæna orkuver sem er hið eina sinnar tegundar í heiminum, sér 17.000 íbúum á Suðurnesjum fyrir heitu vatni og um 45.000 manns fyrir rafmagni.

Jarðsjór Bláa lónsins er tekinn beint úr borholum og leiddur í lögn að heilsulindinni þar sem gestir njóta þess að slaka á í hlýju lóninu meðan virkefni þess: sölt, kísill og þörungar dekra við líkama og sál.

Blue Lagoon húðverndarvörurnar eru byggðar á virkum efnum heilsulindarinnar og gera okkur kleift að njóta hluta þessa einstaka vistkerfis hvar og hvenær sem er.

Bláa lónið er einstök heilsulind staðsett á Reykjanesskaganum. Samsetning vökvans og lífríki þess gerir Bláa lónið að einstöku náttúruundri. Á árunum í kringum 1980 fóru menn að baða sig í lóninu sér til ánægju og heilsubótar og hafa vinsældir þess vaxið með ári hverju.