Veitingar og Ráðstefnur

image

Lava Veitingastaður

Íslenskur matur, íslensk náttúra, íslensk upplifun

Á Lava helst einstakt íslensk umhverfi og matur sem byggir á hreinu  íslensku hráefni í hendur og veita einstaka íslenska upplifun. Ferskt sjávarfang, íslenskt lambakjöt og valdir ostar setja svip sinn á matseðilinn. Nálægð við Grindavík tryggir aðgang að fersku sjávarfangi á degi hverjum.

LAVA er byggður inn í hraunið sem umlykur bláa lónið. Einn veggur staðarins er náttúrulegur steinveggur en hinir eru háir glerveggir með útsýni yfir bláa lónið. Veitingastaðnum fylgja fjölmargir möguleikar. Lava hentar vel fyrir árshátíðir brúðkaup og annan mannfagnað og rúmast 300 manns í sitjandi veislu en 600 í standandi.

Bar og útsýni yfir Auðlindagarðinn í Svartsengi
LAVA bar á annari hæð er tilvalinn til að slaka á fyrir eða eftir máltíð. Á þaki LAVA er jafnframt útsýnispallur, þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Auðlindagarðinn í Svartsengi þar sem blátt lónið setur sterkan svip á stórbrotið umhverfi.

  



Borðapantanir í síma 420 8815  eða sendið tölvupóst

Fréttabréf
Bláa lónsins