Viðburðir
Ævintýralega skreyttur salur LAVA í boði félags matreiðslumeistara.
Samstarf ID og Bláa lónsins var metnaðarfullt verkefni þar sem íslenski dansflokkurinn sýndi verkið "Transaquania". Fyrri hluti verksins fór fram á yfirborði lónsins þar sem gestir fylgdust með ofan í lóninu en seinni hluti verksins fór fram í glæsilegum sal LAVA.
Útgáfutónleikar DJ Margeirs í tilefni af útgáfu Blue Lagoon Soundtrack 2 voru haldnir í Bláa Lóninu í góðri stemningu. Gestir nutu tónlistar og veðurblíðunnar í einstöku náttúrulegu umhverfi.
Hápunktur Norðurlandaþings húðlækna fór fram í Bláa lóninu þar sem allir gestir fóru í lónið og enduðu svo gott þing með fjörugri veislu á LAVA.
Umhverfi Bláa lónsins hentar vel fyrir viðburði að öllu tagi. Viðburðir eins og t.d. Iceland Airwaves tónlistarhátíðin, Jónsmessuganga og fjallahjólakeppni eru reglulega haldnir í Bláa lóninu.
Það að fá sér göngutúr í nágrenni við Bláa lónið og njóta þess að vera úti í náttúrinni. Skipulagðar gönguferðir hafa verið í boði á svæðinu.
Stórkostlegt umhverfi Bláa lónsins býður upp á marga möguleika og hefur t.d. verið vinsæll staður fyrir brúðkaup.

Skákmót ofan í lóninu vakti mikla athygli.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband í síma 420 8815 eða sendið tölvupóst.