LAVA bar
LAVA bar er staðsettur á 2. hæð, fyrir ofan veitingastaðinn LAVA. LAVA Bar er tilvalinn staður til að njóta fordrykks og slaka á í þægilegu umhverfi. Af LAVA bar er útsýni yfir veitingasal og þaðan liggur glerstigi niður á veitingastað LAVA. Einnig er hægt er að komast frá LAVA bar upp á útsýnispall sem er staðsettur á þaki byggingarinnar. Útsýnispallurinn er stór og rúmgóður með fallegu útsýni yfir Bláa Lónið og nálægt umhverfi.
LAVA bar er fallega hannaður og góður kostur fyrir kokkteilboð eða fordrykk. Íslensk listaverk og ljósmyndir hanga þar á veggjum.
Hluti af LAVA bar er innréttaður sem hugguleg setustofa með arni og þægilegum stólum. Þar er tilvalið að tylla sér með góðan drykk eftir vel lukkaða máltíð.
Myndir frá Hauki Snorrasyni