LAVA veitingastaður
Íslenskur matur, íslensk náttúra, íslensk upplifun
Á LAVA helst einstakt íslenskt umhverfi og matur sem byggir á hreinu íslensku hráefni í hendur og veita einstaka íslenska upplifun. Ferskt sjávarfang og íslenskt lambakjöt setja svip sinn á matseðilinn. Nálægð við Grindavík tryggir aðgang að fersku sjávarfangi á degi hverjum.
LAVA er byggður inn í hraunið sem umlykur Bláa Lónið. Einn veggur staðarins er náttúrulegur steinveggur en hinir eru háir glerveggir með útsýni yfir lónið. Yfir daginn er afslappað andrúmsloft á LAVA og algengt að baðgestir fá sér hádegisverð á LAVA í baðsloppnum.
Veitingastaðurinn opnar klukkan 11:30 og tekið er á móti pöntunum til klukkan 21:00 yfir sumartímann (júní -ágúst) og til 20:30 yfir vetrartímann.
"Ég fór með dætrum mínum og barnabörnum í kvöldmat í LAVA. Þetta var mjög ánægjulegt kvöldstund sem við áttum þarna hjá ykkur. Viljum við þakka fyrir okkur og sérstaklega stúlkunni sem þjónaði okkur til borðs. Hún var sérlega viðmótsþýð og almennileg þó við værum með litla hávaðaseggi.
Annars vil ég hrósa því starfsfólki sem ég sá til, allt virtist það svo brosmilt og ánægt og ljúft á allri umgengni. Mun ég og mitt fólk svo sannarlega benda öðrum á þennan góða stað með þessu fína starfsfólki! "
- Hildur
Kokkateymið
Viktor Örn Andrésson er nýr matreiðslumeistari á LAVA, veitingastað Bláa Lónsins. Viktor er meðlimur í landsliði íslenskra matreiðslumeistara. Hann býr yfir víðtækri reynslu og starfaði m.a. á hinum vinsæla veitingastað Domo auk þess sem hann hefur séð um matreiðslu í veiðihúsinu við Þverá. Viktor var einnig í starfsþjálfun á Michelin stjörnu veitingastöðunum Domaine de Clair Fontane Le celadon í Frakklandi og Wd-50 in New York.
Aðrir matreiðslumenn LAVA heimsækja reglulega virta veitingastaði, þar með talið Michelin stjörnu veitingastaðinn Texture í London, til að auka þekkingu og víðsýni.
Veislur á LAVA
Veitingastaðnum fylgja fjölmargir möguleikar. Lava hentar vel fyrir árshátíðir, brúðkaup og annan mannfagnað og rúmast 300 manns í sitjandi veislu en 600 í standandi.
Bar og útsýni yfir Auðlindagarðinn í Svartsengi
LAVA bar á annari hæð er tilvalinn staður til að slaka á fyrir eða eftir máltíð. Á þaki LAVA er jafnframt útsýnispallur, þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Auðlindagarðinn í Svartsengi þar sem Bláa Lónið setur sterkan svip á stórbrotið umhverfi.
Fyrir borðapantanir og frekari upplýsingar:
- hringdu í síma 420 8800
- fylltu út fyrirspurn um borð
- eða sendu tölvupóst á sales@bluelagoon.is
Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
Við mælum með að borð sé bókað með fyrirvara.








Gisting og kvöldverður