Veitingar

Umsagnir

Veitingastaðurinn Bláa lóninu meðal 50 bestu í heimi

Tímaritið Restaurant Magazine valdi veitingastað Bláa lónsins sem einn af 50 bestu veitingastöðum í heimi - veitingastaðurinn er í 44. sæti listans.

Greinarhöfundurinn, Geoffrey Moore, er eigandi veitingastaðarins Hush London. Hann lýsir veitingastaðnum við Bláa lónið á eftirfarandi hátt: Umhverfið er vel hannað og setur skandinavískur stíll svip á staðinn þar sem gestir njóta fallegs útsýnis yfir Bláa lónið.

"Á alþjóðlegum matseðli má finna látlausa rétti þar sem notað er ferskt hráefni frá sjávarþorpinu Grindavík auk þekktra réttra eins og Miðjarðarhafs fiskisúpu og gufusoðinn lax með sítrónusósu. Greinarhöfundur segir máltíð á veitingastaðnum vera góða leið til að slaka jafnvel enn betur á eftir bað í Bláa lóninu. Góð máltíð fullkomnar heimsóknina í Bláa lónið. "

Gestgjafinn gefur veitingastaðnum Bláa lóninu fjórar stjörnur

Veitingastaðurinn í Bláa lóninu fékk fjórar stjörnur af fimm mögulegum í 1. tölublaði Gestgjafans 2003. Veitingastaðurinn fékk mjög góða umfjöllun í svonefndri veitingahúsarýni en þar hafa helstu veitingahús landins verið heimsótt og metin. Farið var fögrum orðum yfir matseðil veitingastaðarins svo og umhverfið og fylgir hér í lokin tilvitnun frá blaðamanni Gestgjafans: "Í heild sinni er maturinn í Bláa lóninu í fullu samræmi við arkitektúrinn og umhverfið; léttur og einfaldur og það er góður endir á góðri ferð í lónið að fá sér að borða áður en haldið er heim á leið."