Veislur
Árshátíðir, brúðkaup og aðrar veislur fá á sig ævintýarlegan blæ í sölum þar sem hraunið og náttúrulegt umhverfið skapa dulúðlega stemningu sem fæst hvergi annars staðar. Fagleg ráðgjöf ásamt persónulegri þjónustu tryggja að viðburðir og önnur tímamót verða að ógleymanlegri stund.
Lava, veitingasalurinn í Bláa lóninu, myndar heillandi umgjörð fyrir árshátíðir, brúðkaup og annan mannfagnað. Salurinn rúmar allt að 300 gesti í sæti og 600 standandi gesti. Hægt er að skipta salnum niður sem gefur möguleika á að afmarka svæði fyrir smærri hópa.
Salirnir í Eldborg henta einnig vel fyrir veislur og mannfagnað. Þar eru tveir salir sem sameina má í einn stóran sal sem rúmar allt að 160 gesti í sæti og 400 standandi gesti. Staðsetningin og kyrrlátt umhverfið gera Eldborg að einstökum kosti fyrir árshátíðir, brúðkaup og aðra viðburði.
Mikið er um að fyrirtæki haldi árshátíðir sínar á veitingastaðnum og þá getur verið skemmtilegt að fá logo fyrirtækisins grafið í klaka, skreyta salinn í sínum litum eða vera með myndakynningu (slideshow) en Bláa Lónið sér um að útvega slíkt.
Nánari upplýsingar má fá í síma 420 8815 eða með því að senda tölvupóst