Veitingar

Lagoon Bar

Lagoon Bar í Bláa lóninuInnibar

Lagoon Bar þjónar baðgestum og býður létta hressingu, svo sem drykki, ís, ávexti og samlokur sem hægt er að kaupa með aðgangsarmbandinu og greiða við brottför.

Á annarri hæð er hvíldarsvæði með þægilegum bekkjum og fallegu útsýni yfir lónið.

Útibar

Á glænýjum útibar er hægt að fá sér hressingu svo sem hinn sívinsæla Blue Lagoon kokteil eða nýkreistan ávaxtasafa. Fyrir þá sem þora er Energy skotið vítamin og hollusta beint í æð.

Á útibarnum er einnig hægt að fullkomna spa upplifunina með því að prófa eldfjallaskrúbb og þörungamaska. Eldfjallaskrúbburinn og þörungamaskinn eru afgreiddir frosnir, án allra umbúða. Hægt er að ylja þá í lófa sér eða dýfa ofan í lónið í stutta stund til að mýkja þá áður en borið er á húðina.

Náttúrulegur eldfjallaskrúbbur
fjarlægir dauðar húðfrumur og styrkir varnarlag húðarinnar og laðar fram ljóma hennar.
Hvernig á að nota: Berið eldfjallaskrúbb varlega á andlitið og líkamann með hringlaga hreyfingum. Varist að bera skrúbb á augnsvæði. Hreinsið með jarðsjó.

Blue Lagoon þörungamaski
er þekktur fyrir áhrif sín gegn öldrun húðarinnar. Hann örvar eigin kollagenframleiðslu húðarinnar og nærir hana.
Hvernig á að nota: Setjið þörungamaskann í lófann og berið á andlit, háls og herðar. Varist að bera maskann á augnsvæði. Látið þorna í 10-15 mínútur og hreinsið af með jarðsjó.